Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 61

Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 61
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 61 Fyrirtæki hafa komið reglu lega til okkar í gegn um tíðina og keypt af okkur rakett - ur, blys og fleira til að gefa til dæmis starfsmönnum og sam - starfsaðilum og sumir hafa valið að varan sé sérmerkt fyrirtækinu en þá merkjum við hólkinn með lógói fyrirtækisins og jafnvel áramótakveðju,“ segir Vilhjálmur Halldórsson í flugeldanefnd björgunarsveitarinnar Ársæls. „Þetta hefur gefist mjög vel; þetta er sniðugt enda svolítið öðruvísi.“ Vilhjálmur segir að þótt ýmsar vörur hafi verið sérmerktar á þennan hátt séu þetta aðal - lega raketturnar þar sem hag kvæmast sé að velja þær. „Það er tiltölulega auðvelt að sérmerkja þessar vörur.“ Úrvalið hjá björgunarsveitinni Ársæli er mikið: Allt frá mjög litlum rakettum upp í stórar miðnæturbombur. „Það sama má segja um skotterturnar; þær eru til mjög litlar upp í risatertur. Það er bara spurning hvað hentar hverju sinni.“ Björgunarsveitirnar selja flug - elda út um allt land og þar af er Ársæll með sex sölustaði í Reykja vík og á Seltjarnarnesi fyrir hver áramót. Um hundrað virkir félagar Hagnaðurinn af sölu flugelda rennur óskiptur til reksturs björgunarsveitarinnar en þess má geta að hún er ein af tæplega hundrað björg unar - sveitum á landinu. „Starfssvæði okkar er höfuð - borgarsvæðið, bæði á landi og sjó. Við erum m.a. með breytta jeppa og snjóbíl, báta og björgunarskip og kafara. Þá erum við hluti af alþjóða- björg unarsveitinni sem hefur farið í nokkur útköll erlendis. Við höfum líka farið út um allt land þegar þess er óskað, svo sem með þyrlu þegar slys verða uppi á jöklum og utan alfaraleiða.“ Starfið er allt unnið í sjálf - boða vinnu þannig að allur hagn aðurinn rennur óskiptur í rekstur björgunarsveitarinnar. Um fjögur hundruð félagar eru á lista en af þeim eru rúmlega hundrað sem teljast virkir og eru á útkallslista. „Þetta snýst ekki bara um útköllin – það er heilmikið sem liggur þarna að baki svo sem æfingar, fjáraflanir, nám skeiða - hald og viðhald á búnaði. Starf - semin er ansi umfangsmikil og það er yfirleitt eitthvað um að vera á hverjum degi yfir vetrar- tímann.“ Nokkur svið Starfsemin skiptist niður á nokkur svið. Landbjörgunar - svið ið sér t.d. um fjalla- og rústa björgun og þar eru sérhæfðir leitar menn. Kafarar, léttabátar og björg- unar skip tilheyra sjóbjörgunar- sviði. Bílar og snjóbíll tilheyra tækjasviði og svo eru það þver faglegir hópar svo sem hvað varðar skyndihjálp, sem á alls staðar við. Loks má nefna bækistöðvar hóp sem mannar bækistöð björg unar sveitarinnar í öllum út köll um, hvort sem það er á landi eða sjó. „Við erum með öfluga nýliða- starfsemi en það er tekinn inn hópur af nýju fólki á hverju hausti sem þarf að halda vel utan um. Við erum auk þess með unglingadeild fyrir fjórtán til átján ára.“ bJörGUNArSVeiTiN ÁrSæll Frumleg aðferð til að minna á sig Björgunarsveitin Ársæll hefur undanfarin ár boðið upp á sérmerktar rakettur, blys og fleira með nöfnum og lógóum fyrirtækja sem þau gefa síðan starfsmönnum sínum og viðskiptavinum í árslok og þakka þannig fyrir samvinnuna og samstarfið á árinu sem er að líða. TexTi: Hrund HauksdóTTir / Myndir: Geir ólafsson Vilhjálmur Halldórsson. „Fyrirtæki hafa komið reglulega til okkar í gegnum tíðina og keypt af okkur rakettur, blys og fleira til að gefa til dæmis starfsmönnum og sam- starfsaðilum og sumir hafa valið að varan sé sérmerkt fyrirtækinu en þá merkjum við hólkinn með lógói fyrirtækisins og jafnvel áramótakveðju.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.