Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 63
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 63
anna en rannsókn VR sýndi að konur verða
af fimm milljörðum króna á ári vegna kynj-
amismunar. Í könnun VR fyrir árið 2012
mældist kynbundinn launamunur 9,4%
en var 10,6% árið 2011. Í þessari könn un
var búið að taka tillit til áhrifaþátta eins og
aldurs, vinnutíma, starfsaldurs, mennt unar,
starfsstéttar, atvinnugreinar og manna for-
ráða.
Í könnun Hagstofunnar frá 2012 var óleið réttur launamunur kynjanna á ís lensk um vinnumarkaði 18,1% en hafði verið 20,5% árið 2008. Ekki
hafði verið tekið tillit til áhrifaþátta eins og
aldurs, vinnu tíma, starfsaldurs, menntunar,
manna for ráða og starfsstéttar. Vert er að
minnast á jafnlaunavottun VR, sem sífellt
fleiri fyrirtæki og stofnanir sækjast eftir.
Alls hafa nú fjórtán fyrirtæki og stofnanir
fengið þessa vottun frá því henni var ýtt úr
vör í febrúar síðastliðnum. Mikil fjölbreytni
einkennir þennan hóp; fyrirtæki í verslun,
ferðaþjónustu og sérhæfðri þjónustu hafa
fengið vottun sem og tvær opinberar stofn -
anir. Á annan tug fyrirtækja eru kom in af
stað í ferli vottunar og svipaður fjöldi er í
startholunum.
Jafnlaunavottun VR er markviss leið fyrir
atvinnurekendur til að uppfylla kröf ur nýs
jafnlaunastaðals Staðlaráðs Ís lands. Vottunin
er tæki fyrir fyrirtæki og stofnanir til að
meta stöðu kynjanna með viðurkenndri
aðferðafræði og sam ræmd um viðmiðum.
Ferlið gefur atvinnu rek endum jafnframt
tækifæri til að leiðrétta kynbundinn
launamun, ef slíkur munur fyrir finnst.
Byggða stofnun er nýjasta fyrirtækið sem
hlýt ur jafnlaunavottun VR. Alls hafa fjórtán
fyrir tæki og stofnanir fengið vottunina.
Fyrsta fyrirtækið til að hljóta hana var Ís -
lenska gámafélagið. Eftirtalin fyrirtæki og
stofn anir hafa fengið vottunina:
Íslenska gámafélagið
iKeA
iss Íslandi
Parlogis
johan Rönning
landmælingar Íslands
deloitte
KPmG
logos
securitas
ölgerðin
Reykjavík excursions – Kynnisferðir
Hýsing vöruhótel
Byggðastofnun
Sigrún Þorleifsdóttir segir í grein sinni í
Frjálsri verslun að stundum hafi verið bent
á að konur mættu hafa meira sjálfstraust og
gera meiri kröfur fyrir eigin hönd um laun
og hlunnindi. „Ef til vill er það rétt,“ segir
Sigrún. „En athyglin sem málstaður Sheryl
Sandberg, höfundar metsölubókarinnar
Lean In, hefur fengið um allan heim að
undanförnu er vísbending um að konur
séu tilbúnar til þess að bretta upp ermar.
Ábyrgðin er engu að síður beggja kynja og
til að tryggja fullan jöfnuð til lengri tíma
verður þetta sameiginlegt verkefni karla og
kvenna – og krefst vilja og skuldbindingar
af hálfu hvorra tveggja ef árangur á að nást.
Þróunin á Íslandi virðist vera í takt við
það sem annars staðar gerist í heiminum
þótt ef til vill hafi meira áunnist hér á
ákveðnum sviðum. Mörg stór skref hafa
verið tekin undanfarin ár sem líklegt er
að hafi góð áhrif til frekari jöfnunar launa
í framtíðinni. Í því sambandi má nefna
nýlegan staðal um jafnlaunavottun og lög
um jöfn kynjahlutföll í stjórnum fyrirtækja
og stofnana. Reglur um jafnan rétt foreldra
til töku fæðingarorlofs hafa haft mikil og
jákvæð áhrif,“ segir Sigrún.
Nýlega greindi RÚV frá rannsókn sem
sýndi að kynjamismunur í ofurlauna-
sam félaginu í Hollywood væri enn mjög
mikill og að í rannsókninni kæmi fram að
leikkonur þénuðu aðeins um þriðjung á við
karla í Hollywood – og að áberandi færri
hlutverk væru skrifuð fyrir konur.
RÚV vísaði þarna í viðamikla rannsókn
kvikmyndaakademíunnar í New York um
kynjamismunun í kvikmyndabransanum.
„Teknar voru fyrir 500 vinsælustu kvik -
myndir Hollywood á tímabilinu 2007-2012
sem leiddi í ljós að konur bera skarðan hlut
frá borði. Um helmingur allra leikstjóra
á síðustu Sundance-kvikmyndahátið var
konur. Þegar kemur að Hollywood-stór -
myndum er annað upp á teningnum. Í
500 vinsælustu myndum síðustu fimm
ára var hlutdeild kvenna meðal leik -
stjóra, framleiðenda, handritshöfunda,
klippara og kvikmyndatökumanna að -
eins 18 prósent. Hlutfall kvenleikstjóra
eingöngu er enn lægra, eða níu prósent.
Niðurstöðurnar eru nánast þær sömu og í
svipaðri rannsókn frá árinu 1998.“
Þá sagði í fréttinni að Martha Lauzen,
prófessor í kynjafræði við San Diego-há -
skóla, hefði bent á að enginn marktækur
mun ur væri á vinsældum kvikmynda
eftir því hvort aðalpersónan væri karl- eða
kvenkyns, eða hvort kven- eða karl leik -
stjóri væri við stjórnvölinn. Engu að síður
væru aðalpersónur karlkyns í um 70 pró -
sentum þeirra mynda sem teknar voru fyrir
í rannsókninni.
LAUNAmUNUR
KYNJA
Hagstofan
2008 20,5%
2012 18,1%
Í niðurstöðum Hagstofunnar segir að þegar
á heildina er litið hafi óleiðréttur launamunur
kynj anna á íslenskum vinnumark aði verið
18,1% árið 2012 og hefur hann lækkað úr
20,5% árið 2008.
könnun Vr
2011 10,6%
2012 9,4%
Í könnun VR fyrir árið 2012 mæld ist kynbund
inn launamun ur 9,4% en var 10,6% árið
2011. Í þeirri könnun er búið að taka tillit til
áhrifaþátta á launin, þ.e. aldurs, vinnutíma,
starfsaldurs, menntun ar, starfsstéttar, atvinnu
greinar og mannaforráða.
Í 500 vinsælustu myndunum í
Hollywood á árunum 2007-2012
voru aðalpersónur karlkyns í um
70 prósentum þeirra mynda sem
teknar voru fyrir í rannsókninni.
Glerþakið snýr að launa mis -
muni num, þ.e. þegar konur og
karlar fá ekki greidd sömu laun
fyrir sömu vinnu, en með gler -
veggnu m er átt við að konur
komist ekki í „stöðurnar“.
Angelina Jolie þénaði mest allra kvenna í Holly
wood árið 2012, sem var þó aðeins helmingur
þess sem hæstlaunaði karlmaðurinn, robert
Downey jr., fékk á sama ári.