Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 85

Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 85
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 85 vörurnar seldar í um 100 verslunum freebird Fatahönnuðirnir Gunnar Hilmarsson og Kol- brún Petrea Gunnarsdóttir höfðu unnið hjá bandaríska fyrirtækinu Freebird um tíma þegar þau festu kaup á öllum hlutabréfum þess fyrr á þessu ári. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar í New York en lögð er áhersla á frekari sókn í Banda ríkjunum og Evrópu. Þá hefur Freebird gert samninga við umboðs- og dreifingaraðila í Danmörku, Svíþjóð, Englandi, Hollandi og á Spáni. Þessir aðilar sjá um sölu í um 100 verslanir. Freebird-verslun er í Reykjavík þar sem hönn un þeirra Gunnars og Kolbrúnar fæst. Þá er fyrirtækið með netverslun, www.free - birdclothes.com. „Stækkunarmöguleikar okkar eru nánast endalausir,“ segir Gunnar. „Við höf - um fengið sterk viðbrögð við merkinu alveg frá Skandinavíu til Ameríku og Asíu. Það eina sem kemur í veg fyrir hraðan vöxt Freebird í Evrópu og Ameríku er fjárfestingin sjálf; við getum bara stækkað miðað við það sem fjárhagurinn leyfir okkur. Það er helsta hindrunin. Það þarf mikla vinnu til að ná árangri í okkar fagi; maður er svolítið ósér hlífinn – þetta er erf- iður markaður, samkeppnin er mikil og erfitt að komast inn en hins vegar eru tækifærin mikil þegar menn komast inn. En það þarf svolítið að berjast fyrir því; það er ekki allt gull sem glóir í þessu.“ blúndur, pallíettur og steinar Gunnar segir að stíllinn sé mjög kvenlegur og rómantískur. „Við leitumst við að hafa ákveðna litapallettu sem við vinnum yfirleitt út frá; það eru mjög mjúkir, rómantískir litir og við leitumst við að nota svolítið gamal dags áferð bæði varðandi það hvernig efnin eru meðhöndluð og hvernig hlutirnir eru bró der- aðir með blúndum, pallíettum og steinum. Það eru því mikil sérkenni bæði í litum og efnisvali. Við höfum lengi verið hrifin og upp tekin af sögu handgerðra hluta en þetta er tækni og iðn sem samfélögin eru svolítið að týna. Við t.d. skoðum og rannsökum hvernig hlutir voru gerðir um aldamótin 1800-1900 og blöndum því svo saman við nútímastrauma og -stefnur.“ Gunnar og kolbrún Petrea höfðu unnið hjá bandaríska fyrirtækinu freebird um tíma þegar þau festu kaup á öll um hlutabréfum þess fyrr á þessu ári. fyrirtækið er með höfuð ­ stöðvar í New York. Gunnar Hilmarsson. „Stækkunarmöguleikar okkar eru nánast endalausir. Við höfum fengið sterk viðbrögð við merkinu alveg frá Skandinavíu til Ameríku og Asíu.“

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.