Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 88
88 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Fatahönnun
selja í evrópu, bandaríkjunum og Japan
farmers market
Bergþóra Guðnadóttir fatahönnuður og eig in -
maður hennar, Jóel Pálsson, stofnuðu hönnunar -
fyrirtækið Farmers Market haustið 2005. Hún
segir að hugmyndin hafi verið að byggja upp
fatamerki sem legði áherslu á vöru línu úr
vönduðum náttúrulegum hrá efnum og sækti
innblástur í sögu okkar og norræn ar rætur.
„Stefna okkar er m.a. sjálfbærni í víðum
skiln ingi; þ.e. bæði á forsendum umhverfis og
fjárhags. Við fórum því mjög rólega af stað og
unnum aðra vinnu með fyrstu tvö til þrjú árin,
enda engir fjárfestar á bak við fyrirtækið heldur
hefur það fengið að vaxa á „lífrænan“ hátt.
Auk sölu á heimamarkaði eru vörur okkar
seldar í 40-50 hönnunar- og tískuverslunum í
Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Við rekum
líka netverslunina Farmers & Friends, sem auk
okkar eigin vörulínu selur m.a. íslenska tónlist
og bækur.“
Litirnir og efnin
Bergþóra segir að hvað hönnunina og hug -
mynd ina á bak við fyrirtækið varðar staðsetji
þau sig á skurðpunkti þar sem fortíð mætir
nútíð, hið þjóðlega mætir hinu alþjóðlega og
sveitin mætir borginni. „Við reynum að hafa
grunnlínuna klassíska og tímalausa og að hægt
sé að nota hana við fjölbreytt tækifæri, bæði í
útivist og borgarlífi.“
Hún segir að litirnir og efnin séu eitt það mikil vægasta í hönnuninni. „Ég leggst undir feld og geri litapallettu
fyrirfram fyrir tímabilið sem við erum að vinna
hverju sinni og er hún svo gegnumgangandi í
vörulínunni sem kemur í kjölfarið. Litirnir eru
gjarnan jarðlitir eða hafa einhverja skírskotun í
náttúruna en eins og ég nefndi eru náttúruleg
hráefni grunnurinn í öllum okkar vörum.
Við höfum til þessa mikið notað ull – íslenska
ull, merinóull og angóru – sem og annars konar
náttúruleg hráefni eins og silki, vaxborna
bómull og hör. Við höfum undanfarin misseri
jafnt og þétt verið að breikka vörulínuna okkar.
Fyrst unnum við aðallega með prjón í peysum
og fylgihlutum, við bættum svo við kjólum,
buxum, undirfötum og nú síðast yfirhöfnum.
Um þessar mundir erum við að stækka línuna
enn meira og er margt spennandi í spilunum
fyrir haust/vetur 2014-15.“
bergþóra Guðnadóttir. „auk
sölu á heimamarkaði eru
vörur okkar seldar í 4050
hönnunar og tískuverslun
um í evrópu, bandaríkj
unum og Japan.“
Jóel Pálsson og Bergþóra Guðnadóttir.