Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 89
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 89
Gæði og virðing
as We Grow
As We Grow er íslenskt hönnunarfyrirtæki
sem framleiðir prjónuð barnaföt en þau hanna
Guðrún Ragna Sigurjónsdóttir fata- og prjóna -
hönnuður og María Theódóra Ólafsdóttir fata -
hönnuður.
„Stíllinn er klassískur og ber keim af skandi n -
a vískum klæðaburði frá liðnum tímum,“ segir
Gréta Hlöðversdóttir, fram kvæmdastjóri og
einn eigenda fyrirtæki sins. „Nýtni fyrri kyn -
slóða er höfð að leiðarljósi og virðing bor in fyrir
umhverfi, í anda „slow fashion“-stefn unnar.
Hugmyndin að As We Grow varð til út frá
peysu sem mörg börn notuðu í níu ár, varð
uppáhaldsflík þeirra allra og er enn í notkun.
Við leggjum áherslu á þá verðmætaaukningu
sem skapast þegar föt ganga manna á milli en
með því skapast ekki síður tilfinningalegt gildi.“
Fötin framleidd í Perú
Gréta segir að sérstaða As We Grow felist í
þremur atriðum; í hugmyndinni sem er lýst hér
að ofan, í vandlega hugsaðri og útfærðri hönn -
uninni og síðast en ekki síst hráefninu sem fötin
eru gerð úr. „Hér er um að ræða gæða efnið
alpaca-ull frá Perú sem gerir það að verkum að
varan endist lengur.“
Fötin eru framleidd í Perú og segir Gréta að
ástæðan fyrir því sé að hér á landi sé ekki hægt
að framleiða föt á samkeppnishæfan hátt, enda
ekki til vélar sem hæfa framleiðslunni.
„Markhópur okkar er fólk sem hugsar um
gæði og umhverfið og þeir sem vilja náttúru -
legar og þægilegar gæðavörur sem þeir geta
nýtt lengi. Við berum mikla virðingu fyrir
framleiðsluferlinu en verksmiðjurnar sem
framleiða garnið og flíkurnar þykja vera til
fyrir myndar og hafa t.d. fengið viðurkenningar
og vottanir fyrir góðan aðbúnað og kjör starfs -
manna. Við höfum líka áhuga á að láta gott af
okkur leiða og höfum t.d. sett af stað hliðar -
verk efni þar sem við látum atvinnu lausar
kon ur í Perú prjóna fyrir okkur trefla úr garnaf-
göng um en ætlunin er að gefa söluand virðið til
góðgerðarmála.“
Kaupmannahöfn, Osló,
Stokkhólmur …
As We Grow hefur nýlega sett á fót eigin vef-
verslun, aswegrow.is, auk þess sem flíkurnar
eru seldar í Mýrinni, Maiu, Rammagerðinni,
Hönnunarbúð Bláa lónsins, í verslunum
Ice landair-hótelanna og í Icelandair-flugvél -
unum. Þá eru flíkurnar seldar í verslunum í
Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Osló og Berlín
auk þess sem þær eru seldar í vefverslunum í
Svíþjóð og Bretlandi.
„Við erum mjög ánægðar með þær frábæru
viðtökur sem fötin hafa fengið bæði hérlendis
og erlendis og þá umfjöllun sem við höfum
fengið. Í Noregi, þar sem við byrjuðum að selja
síðastliðið haust, hefur skapast ótrúlega mikil
stemning og bloggarar duglegir að fjalla um
okkur og senda okkur daglega fyrirspurnir
í gegnum félagsmiðla eins og Instagram. Öll
þessi jákvæða athygli hvetur okkur til enn
frekari landvinninga.“
Gréta Hlöðversdóttir, fram
kvæmdastjóri as We Grow:
„stíllinn er klassískur og
ber keim af skandinavísk
um klæðaburði frá liðnum
tímum.“