Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 92
92 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Herra og dömulína
Jör
Guðmundur Jörundsson.
„merkið er í þróun og hug
myndin er að þróa það enn
frekar áður en við förum að
selja erlendis.“
Guðmundur Jörundsson fatahönnuður opn-
aði verslunina JÖR fyrr á þessu ári en þar selur
hann hönnun sína – bæði herra- og dömufatnað
– sem og ýmsa fylgihluti sem hann flytur inn til
landsins. Verslunin er við Laugaveg og í kjall-
ara húsnæðisins er vinnustofa þar sem m.a. er
unnið að vöruþróun.
„Framleiðslan er mesti höfuðverkurinn en það
er alltaf erfiðasti þröskuldurinn fyrir ný merki
að gera samning við verksmiðjur því það þarf
alltaf að framleiða lágmarksmagn.“
Vörurnar eru flestar framleiddar í Tyrklandi en
þar er umboðsmaður sem sér um að hönnun
Guðmundar sé framleidd í fjölda verksmiðja
sem sérhæfa sig í mismunandi vöru; buxur,
skyrt ur, jakkaföt, frakkar, kápur, kjólar og svo
framvegis. Guðmundur segist reyna að búa til
nýjan heim fyrir hverja línu og reyna að halda
í eitthvað sem merkið stendur fyrir. „Ég fæ
hugmyndir alls staðar frá; allt frá lífríkinu yfir í
bíómyndir, arkitektúr eða áferðir.“
Lögð er áhersla á góð snið og vönduð nátt úru-
leg efni og er unnið í samstarfi við sníðagerðina
7Í HÖGGI og Hexa.
„Merkið er í þróun og hugmyndin er að þróa
það enn frekar áður en við förum að selja er-
l end is,“ segir Guðmundur en hann gerir ráð
fyrir að taka það skref á næsta ári. Draumurinn
er að opna JÖR-verslanir í öðrum löndum.
Dömu deild verslunarinnar verður opnuð í
desem ber og á sama tíma verður lögð lokahönd
á vor- og sumarlínu merkisins sem verður sýnd
í janúar.
„Að því verkefni loknu hefst hönnun á haust-
og vetrarlínu sem sýnd verður á Reykjavík
Fashion Festival í lok mars. Einnig eru spenn-
andi hliðarverkefni framundan á næsta ári
sem merkið mun taka þátt í en JÖR var valið
til að sýna á The Nordic Fashion Biennale 2014
í Frankfurt á Museum Angewandte Kunst en
sú sýning verður opnuð 21. mars. Einnig var
merkið valið til að sýna á Copenhagen Fashion
Summit í apríl 2014 sem þykir mikill heiður
enda frábær merki að sýna.“
Fatahönnun