Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 94
94 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Söngleikjaútgáfan af ein hverri vinsælustu söng og dans mynd sem gerð hefur verið,
Mary Poppins, gengur í Borgar
leik húsinu við metaðsókn og
hefur söngleikurinn verið sýndur
fyrir fullu húsi rúmlega hundr
að sinnum og er ekkert lát á
vinsældunum. Á næsta ári eru
fimmtíu ár frá því kvikmyndin
vinsæla Mary Poppins var gerð
og sýnd við metaðsókn um
allan heim. Hún uppskar meðal
annars fimm óskarsverðlaun
og fékk Julie Andrews óskarinn
fyrir titilhlutverkið.
Það gekk samt ekki snurðu
laust að koma Mary Poppins
á filmu. Tuttugu ár liðu frá því
Disney lofaði dætrum sínum
kvikmynd um hana þar til höf
undurinn, hin einstrengingslega
P.L. Travers, samþykkti hand
ritið. Þegar hún ásamt Disney
sá prufukeyrslu á fullgerðri kvik
myndinni var það fyrsta sem
hún sagði: „Hvenær förum við
að klippa?“ En þar kom hún að
tómum kofunum því í samþykki
hennar fyrir gerð myndarinnar
var aðeins klásúla um að ekkert
yrði gert nema hún samþykkti
handritið, ekki að hún fengi að
ráða hvernig myndin kæmi til
með að líta út, og þar með skildi
leiðir Disneys og Travers fyrir
fullt og allt.
Saving Mr. Banks segir frá
tveim ur vikum árið 1961 þegar
Travers dvaldi í Hollywood að
lesa yfir handritið og samþykkja
það. Búið var að skrifa loka
útgáf una, gera hina vinsælu
skáldsögu að söngleik með,
að flestra mati, stórkostlegum
lögum Shermanbræðra og
nú vantaði aðeins samþykki
Travers til að geta hafið leikinn,
samþykki sem kom ekki.
Fannst traðkað á minn
ingum
Saving Mr. Banks er ekki aðeins
um baráttu Walts Disneys við
P.L. Travers um handritið að
Mary Poppins. Myndin skiptir
stundum um sögusvið og fer
til ársins 1907 þegar Travers
rifjar upp erfiða æsku í Ástralíu.
Faðir hennar var bankamaður
sem hægt og sígandi varð að
drykkju manni og dró fjölskyldu
sína með sér í volæði og hörm
ungar og eru persónur í Mary
Poppinsbókunum margar hverj
ar nátengdar fjölskyldu hennar
og bækurnar því persónulegar
þótt um barnabækur sé að
ræða og skrifaðar í ævintýra
kenndu umhverfi. Í Mary Popp
ins lýsir Travers m.a. sam bandi
sínu við föður sinn og með því
að gera söngleik í létt um dúr
fannst henni verið að traðka á
minningum sínum. Walt Disney
gerir sér ekki grein fyrir þessu
fyrr en hann fer að kafa í eigin
fortíð. Loks fær hann Travers á
sitt band, en það varð, eins og
áður sagði, skammvinn sæla.
Það var margt sem Travers
fannst ómögulegt í myndinni,
til dæmis teiknuðu atriðin, sem
hún fyrirleit, henni fannst Mary
Poppins taka niður fyrir sig með
því að eiga sótara sem kærasta
og besta vin og í einhverju
dansatriðinu sást í undirföt
Walt Disney gerði sér ekki grein fyrir í hversu miklum vandræðum hann myndi lenda þegar
hann lofaði dætrum sínum að gera kvikmynd eftir uppáhaldspersónu þeirra, Mary Poppins. Það
tók hann tuttugu ár að efna loforðið, aðallega vegna þess að höfundur Mary Poppins-bókanna,
P.L. Travers, var ekki tilbúin að láta hina elskuðu barnfóstru sína í hendurnar á Hollywood, enda
fór það svo að hún þoldi ekki myndina.
kVikmyndir
Walt Disney og Mary Poppins
Saving Mr. Banks
Tom Hanks og Emma Thompson í
hlutverkum Walts Disneys og
P.L. Travers.
Texti: Hilmar Karlsson