Peningamál - 01.08.2001, Side 37
milli eiginfjárþarfa seðlabanka og þeirrar gengis- og
vaxtaáhættu sem hann býr við. Seðlabankinn býr við
mikla gengisáhættu vegna eignasamsetningar sinnar
auk þess sem hlutfall seðla og myntar af heildar-
eignum bankans er mjög lágt miðað við það sem
gerist hjá öðrum seðlabönkum. Í athugasemdum við
frumvarpið kom fram að engar algildar reglur eða
viðmiðanir séu til um eigið fé seðlabanka. Þó megi
fullyrða að vegna smæðar hagkerfisins og sveiflna í
umhverfinu þurfi Seðlabanki Íslands að ráða yfir
sterkari eiginfjárstöðu en seðlabankar í stærri ríkjum
sem ekki sæta sömu sveiflum og verða hér á landi.
Hægt er að efla eigið fé bankans með tvennum
hætti, annars vegar með beinu framlagi úr ríkissjóði
og hins vegar með því að gera honum kleift að
styrkja það á nokkurra ára bili þar til að ákveðnu
marki er náð eins og lögin gera ráð fyrir.
Í fyrri lögum var gert ráð fyrir að Seðlabankinn
greiddi árlegt framlag til Vísindasjóðs og var það
reiknað út eftir ákveðnum reglum sem lögin kváðu á
um. Þetta ákvæði hefur nú verið fellt út úr lögunum.
Einnig var fellt úr lögunum ákvæði um sérstakan
ytri endurskoðanda sem ráðherra skyldi skipa. Lögin
kveða því aðeins svo á að bankinn skuli endurskoð-
aður af innri endurskoðanda sem ráðinn er af banka-
ráði og af ríkisendurskoðun.
Bráðabirgðaákvæði
Sem fyrr segir öðluðust lögin gildi 23. maí 2001. Í
ákvæði til bráðabirgða var kveðið svo á að við gildis-
töku laganna skyldi Alþingi kjósa sjö fulltrúa í
bankaráð Seðlabanka Íslands og jafnmarga til vara.
Frá sama tíma félli niður umboð þeirra er þá sátu í
bankaráðinu. Í öðru bráðabirgðaákvæði var kveðið
svo á að bankastjórar Seðlabanka Íslands við gildis-
töku laganna skyldu halda störfum sínum til loka
skipunartíma síns. Ákvæði laganna um skipun
bankastjóra skyldi gilda frá og með fyrstu skipun í
embætti bankastjóra eftir gildistöku laganna. Við
gildistöku laganna skyldi forsætisráðherra skipa for-
mann bankastjórnar úr röðum bankastjóra til sama
tíma og skipun hans í embætti bankastjóra varir.
Í niðurlagi almennra athugasemda með frum-
varpinu sagði m.a. að breytingarnar sem fælust í því
þýddu að meginmarkmið stefnunnar í peningamálum
yrði hið sama og víðast annars staðar, hliðstæðar
kröfur yrðu gerðar til Seðlabanka Íslands og gerðar
væru til annarra seðlabanka um gagnsæi og fagleg
vinnubrögð við mótun á framkvæmd stefnunnar í
peningamálum, bankanum yrði veitt sjálfstæði til að
beita tækjum sínum til þess að ná meginmarkmiði
laganna og fjárhagslegt sjálfstæði hans ykist við að
lokað yrði í lögum fyrir möguleika ríkissjóðs á fjár-
mögnun í Seðlabankanum. Á alþjóðavettvangi hefði
mikið verið lagt upp úr þessum atriðum í mati á lög-
gjöf seðlabanka. Að frumvarpinu samþykktu myndu
lögin um Seðlabanka Íslands því líta vel út borin
saman við mælikvarða sem lagðir hafa verið á slík
lög á undanförnum árum eins og nánar er fjallað um
hér á eftir.
3. Kjör í bankaráð og skipun formanns banka-
stjórnar
Í samræmi við ákvæði laganna kaus Alþingi nýtt
bankaráð í tengslum við samþykkt frumvarpsins.
Kosningu í bankaráð hlutu: Ólafur G. Einarsson fyrr-
verandi ráðherra og alþingismaður, Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri, Hannes Hólmsteinn Gissurarson
prófessor, Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri, Sig-
ríður Stefánsdóttir sviðsstjóri, Davíð Aðalsteinsson
bóndi og Ragnar Arnalds fyrrverandi ráðherra og al-
þingismaður. Varamenn voru kosnir: Erna Gísladóttir
framkvæmdastjóri, Kristín Sigurðardóttir fram-
kvæmdastjóri, Hilmar Gunnlaugsson lögfræðingur,
Finnur Þór Birgisson lögfræðingur, Hörður Zoph-
aníasson fyrrverandi skólastjóri, Leó Löve lögfræð-
ingur og Tryggvi Friðjónsson forstöðumaður. Á
fyrsta fundi sínum 21. maí 2001 kaus nýkjörið
bankaráð Ólaf G. Einarsson formann og Davíð Aðal-
steinsson varaformann.
Með hliðsjón af ákvæðum laganna skipaði for-
sætisráðherra Birgi Ísleif Gunnarsson formann
bankastjórnar Seðlabanka Íslands.
4. Breytt staða Seðlabanka Íslands í alþjóð-
legum samanburði
Eins og fram kom í grein Þórarins G. Péturssonar
(2000) var Seðlabanki Íslands metinn sem einn
ósjálfstæðasti seðlabanki heims í alþjóðlegri saman-
burðarrannsókn Frys o.fl. (2000) á stöðu 94 seðla-
banka víða um heim. Þar kom fram að bankinn lenti
í 27. sæti af 28 iðnríkjum að því er þetta varðar og í
74. sæti í hópi allra 94 ríkjanna. Samanburðurinn
byggðist á því að vega saman fimm lykilþætti í stöðu
36 PENINGAMÁL 2001/3