Peningamál - 01.09.2005, Side 21
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
5
•
3
21
IV Innlend eftirspurn og framleiðsla
Horfur á að framleiðsluspenna verði nokkru meiri en áður var talið
Horfur eru á heldur minni hagvexti á þessu ári en gert var ráð fyrir í
júní, en meiri næstu tvö árin á eftir. Hins vegar virðist hagvöxtur í fyrra
hafa verið töluvert meiri en áður var talið. Meginástæða þess að nú
er talið að hagvöxtur verði ekki eins mikill í ár og gert var ráð fyrir í
júní er að áætlanir um fjármunamyndun hafa verið lækkaðar og spáð
er meiri aukningu innflutnings. Vega þessir þættir þyngra en töluvert
meiri vöxtur einkaneyslu en spáð var í júní. Að samanlögðu eru horfur
á meiri framleiðsluspennu á næsta ári en gert var ráð fyrir í júní.
Hagvöxtur í fyrra meiri en áður var talið en minni árið 2003
Breytingar á metinni framleiðsluspennu næstu árin ráðast ekki aðeins
af breytingum á spám um hagvöxt heldur getur endurskoðun á
gögnum fyrri ára einnig haft töluverð áhrif. Hagstofa Íslands birti í
september bráðabirgðauppgjör fyrir árið 2004 sem sýnir töluvert meiri
hagvöxt en fyrri áætlanir. Stærsta breytingin er að fjármunamyndun
er talin hafa vaxið um 21% á milli áranna 2003 og 2004 í stað 12,8%
áður. Hins vegar er nú talið að bæði einkaneysla og samneysla hafi
vaxið minna en áður var talið. Þessar breytingar leiða til þess að
hagvöxtur á árinu 2004 er talinn um einni prósentu meiri en áður
eða 6,2%.
Hagstofan birti endurskoðaðar tölur um þjóðhagsstærðir fyrir
árin 1990-2004. Nokkur breyting hefur orðið á aðferðum hennar í
samræmi við alþjóðlega þróun í gerð þjóðhagsreikninga. Við áætlun
magn- og verðbreytinga er nú notuð svokölluð keðjutenging,
þ.e.a.s. miðað er við verðhlutföll næsta árs á undan við áætlun
magn breytinga á milli tveggja ára. Með því að miða við nýleg
verðhlutföll ættu áætlanir um magnbreytingar að verða betri en áður.
Þessi endurskoðun leiddi til nokkurrar breytingar á mælingu þjóð-
hagsstærðanna. Þannig telst vöxtur einkaneyslu árið 2003 nú 5,8%
en ekki 6,6% og hagvöxtur 3,6% í stað 4,2%. Hagvöxtur árin 2001
og 2002 telst hins vegar hafa verið 0,7 og 0,8 prósentum meiri en
áður var talið (sjá nánari umfjöllun í rammagrein 1).
Ramma grein 1
Þjóðhagsstærðir
– keðjutenging og
endurskoðun fyrir árin
1990-2003
Hagstofan birti nýjar tölur um helstu þjóðhagsstærðir 13. september
sl. Tölur fyrir tímabilið 1990-2003 hafa verið endurskoðaðar og tekin
upp árleg keðjutenging. Verð- og magnbreytingar milli tveggja ára
eru nú áætlaðar út frá verðhlutföllum fyrra árs. Þessar breytingar
eru síðan tengdar saman til að reikna út magnvísitölur og tímaraðir
sem sýna þróun einstakra stærða á föstu verðlagi.
Áður notaði Hagstofan verðhlutföll tiltekins árs í nokkur ár.
Slík viðmiðunarár eru nefnd grunnár. Hagstofan notaði árið 1990
sem grunnár fyrir magnbreytingar þjóðhagstalna fyrir tímabilið
1990 til 1997 og árið 1997 fyrir tímabilið eftir 1997. Nú er í raun
fyrra árið af hverju tveimur samliggjandi árum grunnár.
Í allri hagfræði er mjög mikilvægt að skilja á milli verð- og
magnbreytinga. Að keypt hafi verið mjólk fyrir 360 milljónir tiltekið
ár og fyrir 480 milljónir árið eftir gefur takmarkaðar upplýsingar. Ef
vitað er að mjólkin kostaði 36 kr. lítrinn fyrra árið en 60 kr. síðara
1997 1999 2001 2003 2005 2007
Mynd IV-1
Vöxtur einkaneyslu 1997-20071
1. Spá Seðlabankans 2005-2007.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
0
2
4
6
8
10
12
-2
-4
Magnbreyting frá fyrra ári (%)