Peningamál - 01.11.2006, Page 32
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
3
32
voru erlendir starfsmenn rúmlega 9.000 eða 5,5% starfandi fólks á
vinnumarkaði. Á fyrstu sex mánuðum ársins fluttust um 3.000 fleiri
erlendir ríkisborgarar til landsins en frá því, en um 3.700 allt árið í
fyrra. Fleiri Íslendingar hafa snúið heim en fluttu af landi brott í ár og
í fyrra, en eins og í síðustu uppsveiflu eru þeir tiltölulega fáir, u.þ.b.
0,1% af vinnuaflinu.
Frá 1. maí sl. þurfa ríkisborgarar frá nýju Evrópusambandsríkjunum
átta (ESB-8) ekki atvinnuleyfi til að starfa hér á landi, en atvinnurek-
endur sem ráða ríkisborgara þessara ríkja til starfa verða hins vegar
að tilkynna um ráðninguna til Vinnumálastofnunar.2 Frá 1. maí fram
til loka septembermánaðar hefur þannig verið tilkynnt um rúmlega
2.500 starfsmenn og þar af eru tæplega 1.900 nýir á íslenskum
vinnumarkaði. Sé þessum skráningum bætt við fjölda nýrra útgef-
inna tímabundinna atvinnuleyfa fjölgaði nýskráningum um tæplega
2.400 eða um 17% miðað við sama tímabil í fyrra. Að auki voru í lok
september skráðir rúmlega 800 starfsmenn við störf á vegum starfs-
mannaleigna.
... þrátt fyrir minni þörf vegna stóriðjuframkvæmda
Rúmlega 30% nýrra atvinnuleyfa fyrstu fjóra mánuði ársins voru
gefin út vegna starfsmanna hjá Bechtel eða Impregilo og önnur 10%
í tengslum við byggingastarfsemi á Austurlandi. Byggingaverktakar
annars staðar en á Austurlandi fengu um 23% atvinnuleyfa, en at-
vinnu rekendur í verslun og þjónustu tæp 20%.
Í kjölfar breytinganna 1. maí hafa orðið töluverð umskipti á
ákvörð unarstað erlendra starfsmanna sem til landsins koma. Aðeins
um 10% kennitalna sem gefnar hafa verið út fyrir erlenda ríkisborg-
ara undanfarnar vikur eru fyrir fólk sem búsett er á Austurlandi. Hins
vegar voru rúmlega 40% nýrra atvinnuleyfa sem gefin voru út fyrstu
fjóra mánuði ársins vegna starfsmanna sem skráðir voru á Austurlandi,
en það er svipað hlutfall og á árunum 2004 til 2005. Þessar tölur eru í
samræmi við áætlanir um mannaflaþörf vegna stóriðjuframkvæmda á
Austurlandi en gert var ráð fyrir að þörf fyrir mannafla næði hámarki
á öðrum fjórðungi ársins.
Fleiri komnir til að vera
Um 70% nýrra atvinnuleyfa sem gefin voru út á síðasta ári voru vegna
ríkisborgara ESB-8 ríkjanna og 84% þeirra sem gefin höfðu verið út
fram til 1. maí á þessu ári þegar lögunum var breytt. Í sumar og til
ágústloka höfðu verið gefnar út um 4.000 kennitölur til útlendinga
sem ekki hafa tekið upp fasta búsetu á Íslandi og þar af voru ríkisborg-
arar ESB-8 landanna um 60%.3
Helsta breytingin fyrir starfsmenn frá nýju Evrópusam bandsríkj-
unum eftir 1. maí sl. er að þeir geta nú komið til landsins án þess að
hafa fengið vinnu og virðast þeir gera það í auknum mæli. Jafnframt
2. Við inngöngu 10 nýrra ríkja í Evrópusambandið 1. maí 2004 tóku reglur um frjálsa för
launafólks strax gildi hér á landi gagnvart Kýpur og Möltu en ákveðið var að fresta gildis-
töku þeirra gagnvart Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi og
Ungverjalandi.
3. Ekki eru allir sem fá úthlutað kennitölu komnir hingað til að vinna en gera verður ráð fyrir
því að mestur hluti þeirra sé hingað kominn vegna vinnu.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Vinnumálastofnun.
Mynd VI-4
Aðfluttir umfram brottflutta og atvinnuleysi
1980 - júní 2006
% af mannafla % af mannafla
-1,5
-1,0
-0,5
0,0
0,5
1,0
1,5
2,0
2,5
3,0
-3
-2
-1
0
1
2
3
4
5
6
Aðfluttir umfram brottflutta, alls (v. ás)
Aðfluttir umfram brottflutta, Íslendingar (v. ás)
Aðfluttir umfram brottflutta, erlendir ríkisborgarar (v. ás)
Atvinnuleysi (h. ás)
‘80 ‘82 ‘84 ‘86 ‘88 ‘90 ‘92 ‘94 ‘96 ‘98 ‘00 ‘02 ‘04 ‘06
Heimild: Vinnumálastofnun.
Mynd VI-5
Ný atvinnuleyfi og nýir starfsmenn
frá ESB-8 ríkjunum
Janúar 2004 - september 2006
Fjöldi
0
100
200
300
400
500
600
700
800
900
1.000
200620052004
Ný atvinnuleyfi
Nýir starfsmenn ESB-8
1. Hlutfall af mannafla.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Vinnumálastofnun.
Mynd VI-6
Atvinnuleysi og hlutfall starfandi fólks með
erlent ríkisfang 1998-2005
%
Hlutfall starfandi fólks með erlent ríkisfang
Atvinnuleysi1
0
1
2
3
4
5
6
20052004200320022001200019991998