Peningamál - 01.11.2006, Page 42
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
3
42
Eftirfarandi tafl a sýnir efnahagsspár sérfræðinga á fjármálamarkaði
sem gerðar voru um miðjan október sl. Að venju voru þátttakendur
í könnuninni greiningardeildir Glitnis hf., KB banka hf., Landsbanka
Íslands hf. og Ráðgjöf og efnahagsspár ehf.
Auk þeirra upplýsinga sem fram koma í meðfylgjandi töfl u
var spurt nánar um stýrivaxtaferil Seðlabankans þ.e. hvenær og
við hvaða gildi hámarki og lágmarki stýrivaxta yrði náð innan spá-
tímabilsins og hver yrði næsta ákvörðun stýrivaxta nú við útgáfu
Peningamála.
Helstu breytingar frá spá sömu aðila í júní sl. eru að þeir gera
nú ráð fyrir eilitlu minni hagvexti á spátímabilinu, töluvert minni
verðbólgu, lægri stýrivöxtum og hærra gengi krónunnar á næsta ári.
Sérfræðingarnir spá að þessu sinni einnig fyrir um árið 2008.
Sérfræðingar spá mun minni verðbólgu á næsta ári
Sérfræðingarnir spá því að verðbólga milli ársmeðaltala 2005 og
2006 verði tæp 7%, sem er aðeins minna en þeir spáðu í júní. Það
er u.þ.b. sama verðbólga og í grunnspá Seðlabankans, sem byggist
á væntingum sérfræðinganna um stýrivaxtaþróun næstu ára. Svar-
endur búast að meðaltali við rúmlega 3% verðbólgu árið 2007 en
samkvæmt grunnspá Seðlabankans verður verðbólga nokkru meiri,
eða 4½%. Sérfræðingarnir spá einnig eilitlu minni verðbólgu milli
ársmeðaltala 2007 og 2008 en Seðlabankinn, eða 3½%. Það er hins
vegar meiri verðbólga en spá með peningastefnuviðbrögðum gefur.
Samkvæmt henni verður ársverðbólga 2008 nálægt 2,5% markmiði
bankans.
Ein helsta breyting frá síðustu könnun í júní er sú að svarendur
reikna að meðaltali með því að Seðlabankinn muni hafa náð verð-
bólgumarkmiðinu að ári liðnu. Einn svarenda telur reyndar að nánast
engin verðbólga verði eftir eitt ár. Hafa verður í huga við samanburð
við fyrri verðbólguspár að í spánum nú er tekið tillit til fyrirhugaðra
aðgerða ríkisstjórnarinnar til að lækka matvöruverð.
Horfur á eilitlu minni hagvexti á spátímabilinu
Sérfræðingarnir spá aðeins minni hagvexti á þessu og næsta ári en
í síðustu könnun. Að meðaltali reikna þeir með 4% hagvexti í ár
og tæplega 1% á næsta ári. Í grunnspá Seðlabankans er gert ráð
fyrir heldur meiri hagvexti á næsta ári eða um 1½%. Sérfræðing-
arnir eru sammála um að verulega muni draga úr umsvifum í þjóð-
arbúskapnum á næsta ári og einn svarenda telur að það verði sam-
dráttur. Þeir eru einnig sammála um að hagkerfi ð taki aftur við sér
á árinu 2008 en þó mismikið. Að meðaltali spá þeir rúmlega 3½%
hagvexti á árinu 2008 en einn svarenda býst við 6% hagvexti vegna
áframhaldandi stóriðjuframkvæmda. Til samanburðar gerir grunnspá
Seðlabankans ráð fyrir tæplega 3% hagvexti árið 2008. Samkvæmt
fráviksspá bankans með peningastefnuviðbrögðum verður hins veg-
ar tæplega 2% samdráttur á því ári.
Gengi krónunnar í jafnvægi á spátímabilinu
Að undanförnu hefur gengi krónunnar styrkst á nýjan leik og spá sér-
fræðingarnir hærra gengi krónunnar á næsta ári en í síðustu könnun.
Þeir spá 125 stiga gengisvísitölu hvort sem litið er eitt eða tvö ár
fram í tímann. Meirihluti svarenda er sammála því að gengisvísitalan
sveifl ist á bilinu 122-130 á spátímabilinu en einn svarenda telur að
gengi krónunnar verði ívið hærra.
Sérfræðingar spá því að stýrivextir hafi náð hámarki
Stýrivextir Seðlabankans hafa verið hækkaðir þrisvar frá síðustu út-
gáfu Peningamála um alls 1,75 prósentur og eru nú 14%. Sérfræð-
Rammagrein VIII-1
Könnun á mati
sérfræðinga á
fjármálamarkaði
á horfum í
efnahagsmálum