Peningamál - 01.11.2006, Blaðsíða 43

Peningamál - 01.11.2006, Blaðsíða 43
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 6 • 3 43 ingarnir gera ráð fyrir að stýrivextir verði lægri að ári en þeir spáðu í júní en spáin er nánast óbreytt til tveggja ára. Að meðaltali spá þeir að stýrivextir verði rúmlega 11% eftir eitt ár og um 9½% eftir tvö ár. Sem fyrr segir var einnig spurt um næstu ákvörðun stýrivaxta og hágildi og lággildi stýrivaxtanna á næstu tveimur árum. Meirihluti sérfræðinganna spáir því að ákveðið verði á vaxtaákvörðunardeg- inum 2. nóvember nk. að halda stýrivöxtum óbreyttum og að Seðla- bankinn taki að lækka vexti á fyrsta fjórðungi næsta árs. Einn svar- enda telur hins vegar að nú verði hækkunin um 0,5 prósentur þannig að hágildi stýrivaxta verði 14,5% og að vextir haldist háir á spá- tímabilinu. Hinir sérfræðingarnir spá því að lággildi stýrivaxta náist á árinu 2008 og eru sammála um að það verði á bilinu 7-8,5%. Einn svarenda gerir ráð fyrir að ný stóriðjufjárfesting hefjist árið 2008. Það endurspeglast í stýrivaxtaspá hans, en samkvæmt henni taka stýrivextir að hækka að nýju þegar líða tekur á það ár. Lækkun fasteignaverðs í vændum á næsta ári Nokkur umskipti hafa orðið á hlutabréfamarkaði að undanförnu. Hinn 18. október sl. stóð úrvalsvísitalan í tæplega 6.500 stigum, sem er tæp 20% hækkun frá miðjum júní, þegar markaðsaðilar spáðu síðast fyrir um efnahagsframvindu. Flestir svarendur eru sammála um að hlutabréfaverð haldi áfram að hækka á spátímabilinu og spá því að meðaltali að úrvalsvísitalan muni standa í rúmum 7.100 stig- um að ári liðnu. Einn spámannanna telur aftur á móti að hlutabréf muni lækka í verði hvort sem litið er til eins árs eða tveggja. Í fyrsta sinn bjuggust svarendur að meðaltali við lækkun fast- eignaverðs á tímabilinu, eða að meðaltali 1½% lækkun íbúðaverðs á næsta ári. Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði1 2006 2007 2008 Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Verðbólga (milli ársmt.) 6,9 6,8 7,0 3,1 2,5 3,7 3,4 2,7 4,3 Hagvöxtur 4,0 3,2 5,1 0,8 -0,2 1,7 3,7 2,3 6,0 Eitt ár fram í tímann Tvö ár fram í tímann Verðbólga 1,8 0,3 3,2 3,4 2,1 4,3 Gengisvísit. erl. gjaldm. 125 118 130 125 117 130 Stýrivextir Seðlabankans 11,2 9,5 14,3 9,6 7,0 14,5 Langtímanafnvextir2 7,2 3,6 9,5 6,5 3,4 8,2 Langtímaraunvextir3 4,8 3,5 7,6 4,5 3,5 7,2 Úrvalsvísitala aðallista 7.173 6.000 7.800 8.013 6.000 9.100 Breyting fasteignaverðs -1,5 -6,0 5,0 -0,1 -3,0 2,9 1. Taflan sýnir breytingu milli tímabila í % nema að því er varðar gengi, vexti og úrvalsvísitölu. Sýnd eru þau gildi sem spáð er fyrir vexti (%), gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla (stig) og úrvalsvísitölu aðallista (stig). Þátttakendur í könnuninni eru greiningardeildir Glitnis hf., KB banka hf., Landsbanka Íslands hf. og Ráðgjöf og efnahagsspár ehf. 2. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í ríkisbréf (RIKB 13 0517). 3. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í íbúðabréf (HFF 150644). Heimild: Seðlabanki Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Peningamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.