Peningamál - 01.11.2006, Blaðsíða 91
Júlí 2006
Hinn 1. júlí var lánshlutfall Íbúðalánasjóðs lækkað tímabundið úr 90%
í 80% og hámarkslán úr 18 milljónum króna í 17 milljónir. Voru þessar
breytingar hluti af aðhaldsaðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Hinn 4. júlí tilkynnti Glitnir banki hf. að kaupum á sænska verðbréfa-
fyrirtækinu Fischer Partners Fondkommission AB væri lokið eftir að skil-
yrðum kaupsamnings hefði verið fullnægt. Kaupverð var 3,7 ma.kr.
Hinn 6. júlí var tilkynnt að bankastjórn Seðlabanka Íslands hefði ákveð-
ið að hækka stýrivexti bankans, þ.e. vexti í endurhverfum viðskiptum
við lánastofnanir, um 0,75 prósentur í 13%. Vextir á daglánum og af
bundnum innstæðum hækkuðu um 0,5 prósentur en aðrir vextir hækk-
uðu um 0,75 prósentur. Allir vextir bankans hækkuðu 11. júlí. Banka-
stjórn ákvað jafnframt að meta þörf fyrir frekara aðhald um miðjan
ágúst og að birta tilkynningu um stýrivexti að morgni 16. ágúst.
Hinn 17. júlí lækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor’s láns-
hæfi smat Íbúðalánasjóðs vegna langtímaskuldbindinga í íslenskum
krónum úr AA+ í AA-. Jafnframt var sjóðurinn tekinn af athugunarlista.
Lánshæfi smat fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt var stað-
fest AA- og A-1+ fyrir skammtímaskuldbindingar í íslenskum krónum
og erlendri mynt. Horfur um breytingar á matinu eru neikvæðar fyrir
skuldbindingar í erlendri mynt en stöðugar fyrir skuldbindingar í ís-
lenskum krónum.
Ágúst 2006
Hinn 16. ágúst var tilkynnt að bankastjórn Seðlabanka Íslands hefði
ákveðið að hækka stýrivexti bankans, þ.e. vexti í endurhverfum við-
skiptum við lánastofnanir, um 0,5 prósentur í 13,5%. Vextir á dag-
lánum og af bundnum innstæðum hækkuðu um 0,25 prósentur en
aðrir vextir bankans um 0,5 prósentur. Vextir á innstæðubréfum til 7
daga og vextir í endurhverfum viðskiptum hækkuðu 22. ágúst en aðrir
vextir 21. ágúst.
September 2006
Hinn 12. september lækkaði alþjóðlega matsfyrirtækið Moody’s Inves-
tor Service mat sitt á fjárhagslegum styrkleika Kaupþings banka hf. úr
C+ í C. Um leið staðfesti matsfyrirtækið lánshæfi seinkunnirnar A1 fyrir
langtímaskuldbindingar og P-1 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur
um breytingar á matinu eru stöðugar.
Hinn 12. september tilkynnti Glitnir banki hf. að gengið hefði verið frá
útgáfu víkjandi skuldabréfa að fjárhæð 250 milljónir Bandaríkjadala,
eða um 18 ma.kr. Útgáfan telst til eiginfjárþáttar A (e. Tier 1).
Hinn 14. september var tilkynnt að bankastjórn Seðlabanka Íslands
hefði ákveðið að hækka stýrivexti bankans, þ.e. vexti í endurhverf-
um viðskiptum við lánastofnanir, um 0,5 prósentur í 14%. Aðrir vextir
Seðlabankans voru einnig hækkaðir um 0,5 prósentur. Vextir á inn-
Annáll efnahags- og peningamála