Peningamál - 01.11.2006, Page 43
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
3
43
ingarnir gera ráð fyrir að stýrivextir verði lægri að ári en þeir spáðu í
júní en spáin er nánast óbreytt til tveggja ára. Að meðaltali spá þeir
að stýrivextir verði rúmlega 11% eftir eitt ár og um 9½% eftir tvö
ár. Sem fyrr segir var einnig spurt um næstu ákvörðun stýrivaxta og
hágildi og lággildi stýrivaxtanna á næstu tveimur árum. Meirihluti
sérfræðinganna spáir því að ákveðið verði á vaxtaákvörðunardeg-
inum 2. nóvember nk. að halda stýrivöxtum óbreyttum og að Seðla-
bankinn taki að lækka vexti á fyrsta fjórðungi næsta árs. Einn svar-
enda telur hins vegar að nú verði hækkunin um 0,5 prósentur þannig
að hágildi stýrivaxta verði 14,5% og að vextir haldist háir á spá-
tímabilinu. Hinir sérfræðingarnir spá því að lággildi stýrivaxta náist á
árinu 2008 og eru sammála um að það verði á bilinu 7-8,5%. Einn
svarenda gerir ráð fyrir að ný stóriðjufjárfesting hefjist árið 2008.
Það endurspeglast í stýrivaxtaspá hans, en samkvæmt henni taka
stýrivextir að hækka að nýju þegar líða tekur á það ár.
Lækkun fasteignaverðs í vændum á næsta ári
Nokkur umskipti hafa orðið á hlutabréfamarkaði að undanförnu.
Hinn 18. október sl. stóð úrvalsvísitalan í tæplega 6.500 stigum, sem
er tæp 20% hækkun frá miðjum júní, þegar markaðsaðilar spáðu
síðast fyrir um efnahagsframvindu. Flestir svarendur eru sammála
um að hlutabréfaverð haldi áfram að hækka á spátímabilinu og spá
því að meðaltali að úrvalsvísitalan muni standa í rúmum 7.100 stig-
um að ári liðnu. Einn spámannanna telur aftur á móti að hlutabréf
muni lækka í verði hvort sem litið er til eins árs eða tveggja.
Í fyrsta sinn bjuggust svarendur að meðaltali við lækkun fast-
eignaverðs á tímabilinu, eða að meðaltali 1½% lækkun íbúðaverðs
á næsta ári.
Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði1
2006 2007 2008
Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi
Verðbólga (milli ársmt.) 6,9 6,8 7,0 3,1 2,5 3,7 3,4 2,7 4,3
Hagvöxtur 4,0 3,2 5,1 0,8 -0,2 1,7 3,7 2,3 6,0
Eitt ár fram í tímann Tvö ár fram í tímann
Verðbólga 1,8 0,3 3,2 3,4 2,1 4,3
Gengisvísit. erl. gjaldm. 125 118 130 125 117 130
Stýrivextir Seðlabankans 11,2 9,5 14,3 9,6 7,0 14,5
Langtímanafnvextir2 7,2 3,6 9,5 6,5 3,4 8,2
Langtímaraunvextir3 4,8 3,5 7,6 4,5 3,5 7,2
Úrvalsvísitala aðallista 7.173 6.000 7.800 8.013 6.000 9.100
Breyting fasteignaverðs -1,5 -6,0 5,0 -0,1 -3,0 2,9
1. Taflan sýnir breytingu milli tímabila í % nema að því er varðar gengi, vexti og úrvalsvísitölu. Sýnd eru þau gildi sem spáð er fyrir vexti (%), gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla
(stig) og úrvalsvísitölu aðallista (stig). Þátttakendur í könnuninni eru greiningardeildir Glitnis hf., KB banka hf., Landsbanka Íslands hf. og Ráðgjöf og efnahagsspár ehf.
2. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í ríkisbréf (RIKB 13 0517). 3. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í íbúðabréf (HFF 150644).
Heimild: Seðlabanki Íslands.