Peningamál - 01.11.2006, Qupperneq 69
F JÁRMÁLAMARKAÐIR
OG AÐGERÐIR SEÐLABANKANS
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
3
69
rófi vaxta sýnir vel þær miklu breytingar sem orðið hafa á verðbólgu-
væntingum markaðarins undanfarið.
Mikill söluþrýstingur myndaðist á verðtryggð bréf í kjölfar yfi rlýs-
ingar stjórnvalda. Ávöxtunarkrafa fl okka íbúðabréfa rauk upp í október
en krafan á lengri fl okkana hafði þá lækkað um 20-40 punkta frá miðju
ári. Ávöxtunarkrafa stysta fl okks íbúðabréfa hefur hækkað töluvert frá
miðjum ágúst svo sem sjá má á mynd 10. En hækkunin á lengri fl okk-
unum þremur hefur þó að einhverju leyti gengið til baka. Þróunin und-
anfarið lýsir mikilli bjartsýni að því er varðar verðbólguhorfur og mjög
hefur dregið úr verðbólguvæntingum. Markaðurinn gerir því ráð fyrir
að hratt dragi úr verðbólgu þrátt fyrir viðvarandi spennu á vinnumark-
aði, mikinn viðskiptahalla og boðaðar skattabreytingar sem verða að
teljast þensluhvetjandi þegar til lengri tíma er litið.
Lánasýslan hóf útgáfu á nýjum tveggja ára ríkisbréfafl okki í júní
en það var hluti af áætlun um að styrkja vaxtaferilinn til tveggja ára
og bæta þannig miðlun peningastefnunnar út vaxtarófi ð. Flokkurinn
hefur nú náð þeirri stærð sem stefnt var að eða 15 ma.kr. Nýr tveggja
ára ríkisbréfafl okkur verður svo boðinn út í desember.
Hlutabréfamarkaður
Innlendur hlutabréfamarkaður tók við sér á þriðja ársfjórðungi og hef-
ur ICEX-15 hlutabréfavísitalan hækkað um 24% frá því að hún náði
lágmarki, 5.240 stigum í júlí. Hinn 25. október var vísitalan í 6.500
stigum. Hæst var hún tæplega 7.000 stig í febrúar á þessu ári en lækk-
aði hratt í kjölfar umrótsins á markaðnum sem hófst í febrúar og stóð
fram á sumar.
KB banki seldi hlut sinn í Exista í ágúst. Mikil eftirspurn var eftir
bréfunum og fengu fjárfestar helming þess sem þeir sóttust eftir. KB
banki hafði áður lýst því yfi r að til stæði að selja hluti bankans í félaginu
til hluthafa í KB banka m.a. til að bregðast við gagnrýni um gagnkvæm
eignatengsl í félögunum tveimur. Hlutafé í Exista var skráð í Kauphöll
Íslands þann 15. september.
FL Group tilkynnti í byrjun október að til stæði að skrá Icelandair
Group í Kauphöll Íslands fyrir árslok 2006. Heildarvirði félagsins er talið
um 43 ma.kr. en Glitnir sölutryggði 51% hlut í félaginu og seldi til
kjölfestufjárfesta. Til stendur að bjóða almenningi og fagfjárfestum að
kaupa hluti í félaginu í almennu útboði.
Í september var tilkynnt að OMX í Svíþjóð og Eignarhaldsfélag
Verðbréfaþings (EV), eigandi Kauphallar Íslands, hafa undirritað samn-
ing um samruna OMX og EV. OMX býður nú þegar aðgang að um
80% verðbréfamarkaðar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum,
þ.e. að öllum mörkuðum á svæðinu að þeim norska undanskildum.
Mynd 9
Ávöxtun ríkisbréfa
Daglegar tölur 3. janúar 2006 - 27. október 2006
%
Heimild: Seðlabanki Íslands.
7,0
8,0
9,0
10,0
11,0
12,0
13,0
14,0
15,0
RIKB 13 0517
RIKB 10 0317
RIKB 08 0613
RIKB 07 0209
okt.sep.ágústjúlíjúnímaíapr.marsfeb.jan.
3,5
4,0
4,5
5,0
5,5
6,0
6,5
okt.sept.ágústjúlíjúnímaíapr.marsfeb.jan.
HFF 150914
HFF 150224
HFF 150634
HFF 150644
Mynd 10
Raunávöxtun íbúðabréfa
Daglegar tölur 3. janúar 2006 - 27. október 2006
%
Heimild: Seðlabanki Íslands.
OBX (Noregur)
DJIA (Bandaríkin)
NIKKEI 225 (Japan)
DAX (Þýskaland)
ICEX15 (Ísland)
FTSE100 (Bretland)
Mynd 11
Þróun nokkurra hlutabréfavísitalna
Daglegar tölur 30. desember 2005 - 27. október 2006
30. desember 2005 = 100
Heimild: Reuters.
80
100
120
140
okt.sept.ágústjúlíjúnímaíapr.marsfeb.jan.