Peningamál - 01.03.2007, Blaðsíða 31
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
1
31
um gengisþróun ef litið er eitt ár fram í tímann og munar 20 stigum
á hæsta og lægsta spágildi. Ef litið er tvö ár fram í tímann eru þeir
sammála um að gengisvísitalan verði á bilinu 120-127 stig.
Sérfræðingar spá hraðri lækkun stýrivaxta
Stýrivextir Seðlabankans eru nú 14,25% og voru hækkaðir um 0,25
prósentur í desember sl. Að meðaltali er spá sérfræðinganna nánast
óbreytt frá síðustu könnun. Þeir spá því að stýrivextir verði rúmlega
11% eftir eitt ár, rúmlega 9% eftir tvö ár og 8% eftir þrjú ár. Meiri-
hluti þeirra spáir því að ákveðið verði á vaxtaákvörðunardeginum
29. mars nk. að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hins vegar er breyting
frá útgáfu síðustu Peningamála að meirihluti svarenda reiknar með
að Seðlabankinn taki að lækka vexti á þriðja fjórðungi þessa árs.
Í síðustu könnun bjuggust þeir við að lækkun vaxta myndi hefjast
fyrr. Einn svarenda telur hins vegar að vextir verði hækkaðir um 0,25
prósentur og að vextir haldist háir á spátímabilinu. Nokkur munur er
á spám sérfræðinganna um lággildi stýrivaxta á næstu árum. Spáð er
að vextir verði lægstir frá 5,5% til 10% í lok áratugarins.
Horfur á hækkun eignaverðs á spátímabilinu
Hlutabréfaverð hefur hækkað töluvert frá áramótum og virðist mikil
bjartsýni vera ríkjandi á hlutabréfamarkaði. Hinn 21. mars sl. stóð
úrvalsvísitalan í tæplega 7.500 stigum, sem er um 15% hækkun
frá miðjum október. Sérfræðingarnir eru fl estir á þeirri skoðun að
hlutabréfaverð haldi áfram að hækka og spá meiri hækkun en í síð-
ustu könnun. Að meðaltali spá þeir að úrvalsvísitalan standi í rúmum
8.000 stigum að ári liðnu.
Sérfræðingarnir búast við hækkun fasteignaverðs á spátíma-
bilinu sem er töluverð breyting frá síðustu könnun, enda virðist hús-
næðisverðbólga hafa tekið við sér á ný frá áramótum. Að meðaltali
spá þeir að fasteignaverð hækki um rúmlega 3% á næstu tólf mán-
uðum. Enginn reiknar með lækkun fasteignaverðs á spátímabil inu en
einn svarenda telur að það muni standa í stað á næstu tólf mánuðum
þannig að raunverð fasteigna lækki.
Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði1
2007 2008 2009
Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi
Verðbólga (milli ársmt.) 3,5 2,8 4,2 3,5 2,1 4,2 2,6 1,5 3,3
Hagvöxtur 2,4 1,5 3,4 3,2 2,3 4,1 3,2 2,6 3,5
Eitt ár fram í tímann Tvö ár fram í tímann
Verðbólga 3,4 2,1 4,6 3,1 2,5 3,4
Gengisvísit. erl. gjaldmiðla 126 115 135 124 120 127
Stýrivextir Seðlabankans 11,3 9,8 14,0 9,2 6,0 13,0
Langtímanafnvextir2 8,1 7,4 8,5 7,6 7,0 8,0
Langtímaraunvextir3 3,8 3,5 4,0 3,6 3,4 3,8
Úrvalsvísitala aðallista 8.063 7.000 8.820 8.930 7.000 10.143
Breyting fasteignaverðs 3,1 0,0 5,0 3,2 0,0 7,6
1. Taflan sýnir breytingu milli tímabila í % nema að því er varðar gengi, vexti og úrvalsvísitölu. Sýnd eru þau gildi sem spáð er fyrir vexti (%), gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla
(stig) og úrvalsvísitölu aðallista (stig). Þátttakendur í könnuninni eru greiningardeildir Glitnis hf., Kaupþings hf., Landsbanka Íslands hf. og Askar Capital hf. 2. Ávöxtunarkrafa
í tilboðum viðskiptavaka í ríkisbréf (RIKB 13 0517). 3. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í íbúðabréf (HFF 150644).
Heimild: Seðlabanki Íslands.