Peningamál - 01.03.2007, Síða 31

Peningamál - 01.03.2007, Síða 31
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 7 • 1 31 um gengisþróun ef litið er eitt ár fram í tímann og munar 20 stigum á hæsta og lægsta spágildi. Ef litið er tvö ár fram í tímann eru þeir sammála um að gengisvísitalan verði á bilinu 120-127 stig. Sérfræðingar spá hraðri lækkun stýrivaxta Stýrivextir Seðlabankans eru nú 14,25% og voru hækkaðir um 0,25 prósentur í desember sl. Að meðaltali er spá sérfræðinganna nánast óbreytt frá síðustu könnun. Þeir spá því að stýrivextir verði rúmlega 11% eftir eitt ár, rúmlega 9% eftir tvö ár og 8% eftir þrjú ár. Meiri- hluti þeirra spáir því að ákveðið verði á vaxtaákvörðunardeginum 29. mars nk. að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hins vegar er breyting frá útgáfu síðustu Peningamála að meirihluti svarenda reiknar með að Seðlabankinn taki að lækka vexti á þriðja fjórðungi þessa árs. Í síðustu könnun bjuggust þeir við að lækkun vaxta myndi hefjast fyrr. Einn svarenda telur hins vegar að vextir verði hækkaðir um 0,25 prósentur og að vextir haldist háir á spátímabilinu. Nokkur munur er á spám sérfræðinganna um lággildi stýrivaxta á næstu árum. Spáð er að vextir verði lægstir frá 5,5% til 10% í lok áratugarins. Horfur á hækkun eignaverðs á spátímabilinu Hlutabréfaverð hefur hækkað töluvert frá áramótum og virðist mikil bjartsýni vera ríkjandi á hlutabréfamarkaði. Hinn 21. mars sl. stóð úrvalsvísitalan í tæplega 7.500 stigum, sem er um 15% hækkun frá miðjum október. Sérfræðingarnir eru fl estir á þeirri skoðun að hlutabréfaverð haldi áfram að hækka og spá meiri hækkun en í síð- ustu könnun. Að meðaltali spá þeir að úrvalsvísitalan standi í rúmum 8.000 stigum að ári liðnu. Sérfræðingarnir búast við hækkun fasteignaverðs á spátíma- bilinu sem er töluverð breyting frá síðustu könnun, enda virðist hús- næðisverðbólga hafa tekið við sér á ný frá áramótum. Að meðaltali spá þeir að fasteignaverð hækki um rúmlega 3% á næstu tólf mán- uðum. Enginn reiknar með lækkun fasteignaverðs á spátímabil inu en einn svarenda telur að það muni standa í stað á næstu tólf mánuðum þannig að raunverð fasteigna lækki. Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði1 2007 2008 2009 Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Meðaltal Lægsta gildi Hæsta gildi Verðbólga (milli ársmt.) 3,5 2,8 4,2 3,5 2,1 4,2 2,6 1,5 3,3 Hagvöxtur 2,4 1,5 3,4 3,2 2,3 4,1 3,2 2,6 3,5 Eitt ár fram í tímann Tvö ár fram í tímann Verðbólga 3,4 2,1 4,6 3,1 2,5 3,4 Gengisvísit. erl. gjaldmiðla 126 115 135 124 120 127 Stýrivextir Seðlabankans 11,3 9,8 14,0 9,2 6,0 13,0 Langtímanafnvextir2 8,1 7,4 8,5 7,6 7,0 8,0 Langtímaraunvextir3 3,8 3,5 4,0 3,6 3,4 3,8 Úrvalsvísitala aðallista 8.063 7.000 8.820 8.930 7.000 10.143 Breyting fasteignaverðs 3,1 0,0 5,0 3,2 0,0 7,6 1. Taflan sýnir breytingu milli tímabila í % nema að því er varðar gengi, vexti og úrvalsvísitölu. Sýnd eru þau gildi sem spáð er fyrir vexti (%), gengisvísitölu erlendra gjaldmiðla (stig) og úrvalsvísitölu aðallista (stig). Þátttakendur í könnuninni eru greiningardeildir Glitnis hf., Kaupþings hf., Landsbanka Íslands hf. og Askar Capital hf. 2. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í ríkisbréf (RIKB 13 0517). 3. Ávöxtunarkrafa í tilboðum viðskiptavaka í íbúðabréf (HFF 150644). Heimild: Seðlabanki Íslands.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.