Peningamál - 01.03.2007, Page 38
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
7
•
1
38
en skráðum starfsmönnum hjá Vinnumálastofnun eða um 4.650.
Misræmið gæti m.a. stafað af því að nokkur óvissa er oft um skrán-
ingu útlendinga í flutningum til og frá landinu þar sem það getur dreg-
ist að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir hjá Þjóðskrá.
Íslenskum ríkisborgurum á vinnualdri fjölgaði mun minna (2.770)
en erlendum ríkisborgurum. Pólskum ríkisborgurum (2.620) á vinnu-
færum aldri fjölgaði nánast jafn mikið og íslenskum ríkisborgurum á
árinu.
Hlutfall erlendra ríkisborgara af starfandi fólki yfir 7%
Vísbendingar eru um að hlutfall erlendra starfsmanna af vinnuaflinu
hafi verið töluvert hærra á síðasta ári en árið 2005. Hlutfall erlendra
ríkisborgara af starfandi fólki var um 4½% árið 2004 og um 5½% árið
2005 sem eru sömu hlutföll og milli erlendra ríkisborgara á vinnualdri
af mannfjölda á þessum árum. Árið 2006 var hlutur erlendra ríkisborg-
ara á vinnualdri um 7½% af mannfjöldanum og hafi sambandið milli
þessara stærða haldist svipað og árin á undan, gæti hlutfall erlendra
ríkisborgara af starfandi fólki hafa verið rúmlega 7%.
Engar vísbendingar um að dragi úr innflutningi vinnuafls
Það sem af er þessu ári hafa nýskráningar hjá Vinnumálastofnun
verið aðeins undir meðaltali síðasta árs eða tæplega 400 á mánuði.
Fyrstu tvo mánuði ársins fengu hins vegar um 2 þús. manns úthlutað
kennitölu hjá Þjóðskrá. Tæplega 70% þeirra komu frá ESB-8-ríkjunum.
Töluvert fleiri hafa því fengið úthlutað kennitölu en voru skráðir hjá
Vinnumálastofnun. Ekki virðist því draga úr framboði vinnuafls frá
þessum löndum. Batnandi efnahagsástand og aukin eftirspurn eftir
vinnuafli í Evrópu gætu hins vegar leitt til þess að ríkisborgarar ESB-8-
ríkj anna leituðu frekar atvinnu í löndum sem liggja nær heimalöndum
þeirra.
Fleiri fyrirtæki vilja fjölga starfsmönnum
Könnun meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins, sem gerð er reglulega
fyrir Seðlabanka Íslands, fjármálaráðuneytið og Samtök atvinnulífsins,
gefur leiðandi vísbendingu um eftirspurn eftir starfsfólki.
Áhrif á verðbólgu
Líklegt er að fjölgun erlendra starfsmanna á íslenskum vinnumarkaði
á undanförnum árum hafi haft meiri áhrif á framboðshlið þjóðarbú-
skaparins en eftirspurnarhlið og þar með dregið úr verðbólguþrýst-
ingi. Í ljósi aldurssamsetningar erlendu starfsmannanna og hlutfalls
karlmanna af hópnum má gera ráð fyrir að atvinnuþátttaka sé meiri
og vinnutími lengri en að meðaltali hjá starfsmönnum með íslenskt
ríkisfang. Þar sem stór hluti erlendra starfsmanna hefur komið hing-
að til tímabundinnar dvalar er líklegt að þeir hafi sparað stærri hluta
launa sinna en innlendir starfsmenn og áhrif þeirra á eftirspurn því
verið minni en ella. Innfl utningur vinnuafl s hefur því gegnt lykilhlut-
verki við að koma þjóðarbúskapnum í gegnum umbrotatíma und-
anfarinna ára og hjálpað til við að koma í veg fyrir að verðbólga færi
enn meira úr böndunum en hún hefur gert.
Heimild: Vinnumálastofnun.
Mynd VI-4
Erlendir starfsmenn skráðir hjá
Vinnumálastofnun
3 mánaða hreyfanleg meðaltöl
Fjöldi, viðbót í hverjum mánuði
Ný tímabundin leyfi
Skráðir nýir starfsmenn frá ESB-8
Nýir starfsmenn á vegum starfsmannaleigna
Ný tímabundin leyfi á nýjum vinnustað og framlengd
tímabundin leyfi
0
100
200
300
400
500
600
700
800
900
1.000
1.100
2007200620052004