Peningamál - 01.03.2007, Page 52

Peningamál - 01.03.2007, Page 52
ÞRÓUN OG HORFUR Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM P E N I N G A M Á L 2 0 0 7 • 1 52 Misvísandi þróun verðbólguvæntinga að undanförnu Verðbólguvæntingar hafa hækkað á flesta mælikvarða. Í könnun sem gerð var á viðhorfum stærstu fyrirtækja á Íslandi á tímabilinu 2. til 28. febrúar reiknuðu stjórnendur þeirra með 2,9% verðbólgu á næstu tólf mánuðum. Verðbólguvæntingarnar hækka frá síðustu mælingu í des- ember þegar þær námu 2,2%. Samkvæmt könnun á mati sérfræðinga á fjármálamarkaði sem gerð var í mars (sjá rammagrein IV-1) væntu þeir örlítið meiri verðbólgu á þessu ári en í könnun fyrir síðustu útgáfu Peningamála. Sérfræðingarnir spá að meðaltali að verðbólga milli ársmeðaltala 2006 og 2007 verði 3½%. Þeir spá sömu verðbólgu á árinu 2008 sem er svipað og þeir spáðu í október sl. Verðbólguvæntingar almennings lækkuðu eilítið í könnun sem gerð var 21. til 26. febrúar. Einstaklingar væntu að meðaltali 5,7% verðbólgu á næstu tólf mánuðum, einungis 0,2 prósentum minna en í október árið 2006. Töluverður munur er því á verðbólguvæntingum almennings og forsvarsmanna fyrirtækja. Svo virðist sem einstaklingar búist við því að undirliggjandi verðbólguþrýstingur verði áfram mik- ill og verðbólgumarkmið Seðlabankans ekki í augsýn. Líklegt er að verðbólguvæntingar almennings séu mjög háðar liðinni verðbólgu sem hefur verið mikil í langan tíma. Verðbólguvæntingar hafa hins vegar hækkað örlítið frá síðustu útgáfu Peningamála ef miðað er við verðbólguálag á skuldabréfamarkaði og væntu markaðsaðilar að með- altali 2% verðbólgu á tímabilinu 7. nóvember til 27. mars. Mynd VIII-9 Laun á almennum vinnumarkaði og almenn þjónusta 2. ársfj. 1998 - 4. ársfj. 2006 Almenn þjónusta Laun á almennum vinnumarkaði %-breyting frá sama fjórðungi fyrra árs 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 200620052004200320022001200019991998 Heimild: Hagstofa Íslands. % Mynd VIII-10 Verðbólguvæntingar Vikulegar tölur 7. janúar 2003 - 27. mars 2007 1. Verðbólguálag reiknað út frá ávöxtunarkröfu RIKB 13 0517 og RIKS 15 1001. 2. Verðbólguálag reiknað út frá ávöxtunarkröfu RIKB 13 0517 og HFF150914. Verðbólguvæntingar almennings, fyrirtækja og sérfræðinga á markaði miðast við verðbólgu eitt ár fram í tímann. Heimild: Seðlabanki Íslands. Verðbólguálag ríkisskuldabréfa1 Verðbólguvæntingar stærstu fyrirtækja Verðbólguspár sérfræðinga á fjármálamarkaði Verðbólguvæntingar almennings . 1 2 3 4 5 6 7 8 ‘072006200520042003 Verðbólguálag ríkisskuldabréfa2 % Mynd VIII-11 Yfirlit yfir spár sérfræðinga á fjármálamarkaði um verðbólgu milli ársmeðaltala1 0 1 2 3 4 5 6 7 8 ‘0720062005200420032002 * * * * 2002 2003 2004 1. Punktar sýna raunverulega verðbólgu hvers árs. Heimild: Seðlabanki Íslands. 2005 2006 2007 2008 *
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106

x

Peningamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.