Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1991, Blaðsíða 119
Jóhann Hannesson
Saga kristinnar boðunar
í frumdráttum
1. Hvað er prédikun?
Er réttmætt að greina hina kristnu boðun — prédikunina — frá öðrum
formum ritaðs og talaðs máls? Er auðið að benda á einhver sérkenni, sem
greina kirkjulega prédikun frá öllu öðru máli?
Vilji maður fá svör við þessum spumingum, er nauðsynlegt að athuga
þróun prédikunarinnar frá upphafi og þróun hennar í sögu kirkjunnar.
Um leið þarf að athuga þær megingerðir af boðun orðsins, sem í þessari
sögu verða á vegi manna í aldanna rás, og aldimar em þegar orðnar
nokkuð margar.
Saga hinnar kristnu boðunar er mikið rannsóknarefni, en hefir þó lítt
verið rækt. Á því er nokkur hætta að allt það mikla magn, sem til er af
prédikunum og öðmm kirkjulegum ræðum hafi fælt menn frá þess konar
rannsóknarstarfi. Frá fomkirkjunni einni er til svo mikið magn af
prédikunum að þótt þær einar væm rannsakaðar, myndi ein mannsævi
ekki duga til. Miðaldimar geyma svo mörg ólík viðhorf til prédikunar-
starfsins og svo mikið af heimildum um það, að lítil von er til að gera
yfirlit yfir þau öll. Siðbótarmenn framleiddu ógrynni af prédikunum, og
mjög mikið af framleiðslu þeirra er enn varðveitt. Og tvær síðustu aldir,
hin 19. og 20. standa siðbótaröldinni sízt að baki hvað magn snertir. Þrátt
fyrir ýms vandkvæði við að rannsaka þetta mikla magn, þá em rann-
sóknir á þessu sviði ekki síður vænlegar til árangurs en aðrar fræðilegar
rannsóknir. í reynd hafa þó rannsóknir á liturgíum og messuformum
orðið miklu umfangsmeiri á vomm tímum en rannsóknir á boðun orðsins
á ýmsum öldum. Jafnvel sérhæfðar athuganir á prédikunum Ágústínusar
og Lúthers hafa ekki verið viðunandi af hendi leystar enn sem komið er.
2. Upphaf kristinnar prédikunar
í fjórða kapitula Lúkasar guðspjalls má sjá hvemig Jesús tekur þátt í
guðþjónustu sinnar tíðar og hvemig hann prédikar. Hann stóð upp til að
lesa, og honum var fengin bók Jesaja spámanns. Hann las upp texta, sem
enn er notaður í prédikun synagógunnar: Andi Drottins er yfir mér, af
því að hann hefir smurt mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap (Lk
117