Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1995, Side 67
MÚLAÞING
65
var bjargað undan hafrinum og varð að liggja rúmfastur nokkra daga á
eftir.
Hér á eftir ætla ég að reyna að skrifa upp það sem ég man af því, sem
Jósef sagði mér af æviferli sínu, og einnig styðst ég við upplýsingar frá
Þórði Einarssyni syni séra Einars Þórðarsonar í Hofteigi. En Þórður
dvaldi um tíma á Vopnafirði um sama leyti og Jósef var þar.
Um Ragnhildi Stefaníu Jónasdóttur bústýru Jósef segi ég lítið í þessari
grein, enda kom út bók um hana árið 1963 skrifuð af Jónasi Árnasyni
rithöfundi og heitir hún Undir Fönn.
Jósef Axfirðingur er fæddur að Leifsstöðum í Öxarfirði 23. febrúar
árið 1862. Faðir hans hét Jósef Brynjólfsson, og var hann ættaður af
Hólsfjöllum. En móðir Jósefs hét Helga Eiríksdóttir, og voru þau í hús-
mennsku að Leifsstöðum þegar Jósef fæddist. Jósef mun hafa átt þrjú
systkini og hét einn bróðir hans Brynjólfur, en um nöfn á hinum tveimur
börnunum er mér ekki kunnugt. Jósef tjáði mér að foreldrar hans hefðu
verið bláfátæk, en barist áfram með hörku, enda hafi þau bæði verið
stórlynd. Þegar Jósef var tveggja ára flytjast foreldrar hans að Ærlæk í
sömu sveit og voru þar í húsmennsku í eitt ár. Þar verður faðir Jósefs
heilsulaus og lenda þau því á sveitina. Flytja þau frá Ærlæk að Vestara-
Landi í sömu sveit og deyr faðir Jósef þar árið 1865.
Þegar Jósef er fimm ára, er honum komið fyrir að Gilsbakka þar í
sveitinni hjá fremur efnuðum hjónum, sem gjörðu vel við hann. Þama
var Jósef í sex ár, en þá flytur hann að prestssetrinu Skinnastað til Brynj-
ólfs bróður síns og Helgu móður sinnar, sem bjuggu þar í tvö ár, á með-
an prestlaust var á staðnum. Er þá Jósef orðinn ellefu ára gamall, hraust-
ur eftir aldri og stórlyndur. Kvað Jósef að þeim bræðrum hefði komið
illa saman.
Árið 1875 verður feiknalegt eldgos í Dyngjufjöllum og leitaði askan
austur á bóginn, svo að allur efri hluti Jökuldals í Norður-Múlasýslu fer í
eyði um tíma. Þá skömmu áður hafði séra Stefán Sigfússon frá
Skriðuklaustri í Fljótsdal fengið veitingu fyrir Skinnastað og flutti þang-
að með allt sitt fólk. Verða því þeir bræður. Brynjólfur og Jósef, að
flytja þaðan með móður sína. Jósef flyst að Ærlækjarseli til indælis
hjóna og er þar í tvö ár. Þar fermist Jósef árið 1877 og fær þennan vitn-
isburð hjá prestinum: „Les sæmilega, kann kverið sæmilega og hegðar
sér skikkanlega.“
Nú er Jósef orðinn fimmtán ára, fer frá Ærlækjarseli og ræður sig í
vist, er á ýmsum stöðum, en fremur stutt á hverjum stað. Jósef segist