Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1995, Side 71

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1995, Side 71
MÚLAÞING 69 um þeirra komið fyrir víðsvegar í hreppnum. Loks var eftir aðeins ein stúlka 17 ára, sem ekki hafði verið ráðstafað. Þá er það Jósef sem bjarg- ar málinu. Hann bauðst til að taka stúlkuna til sín, og var það vel þegið af yfirvöldum hreppsins. Stúlka þessi hét Ragnhildur Stefanía Jónasdótt- ir fædd 19. febrúar 1885 að Leifsstöðum í Vopnafirði. Dvaldi hún hjá Jósef á meðan hann lifði eða til ársins 1946. Hún reyndist bráðdugleg til allra verka, skemmtileg og skarpgáfuð, var t.d. vel hagmælt. Mundi Jósef aldrei hafa getað fengið betri bústýru. A Felli bjó Jósef í sextán ár og skiptust þá á skin og skúrir. Fyrstu árin, sem hann bjó á Felli, eða frá aldamótum og fram til 1910, var góð- æri mikið í Vopnafirði, og tjölgaði þá Jósef búfé sínu mikið, og urðu ærnar um 500 þegar mest var. Fór hann oft með 100 sauði í sláturhúsið, fékk yfir 20 krónur fyrir sauðinn og þótti það gott þá. Græddi því Jósef vel á þeim árum, því vinnufólk hafði hann sjaldan. Þótti hann svo vinnu- harður að menn gengu úr vistinni frá honum. Eitt sinn réði hann til sín vinnumann, sem Bjarni hét. Þegar leið á árið gekk Bjarni úr vistinni, en Jósef hélt farangri hans og sleppti honum ekki, þótt hart væri eftir gengið, og heimtaði jafnvel bætur fyrir brot á ráðningarsamningi. Loks tók hreppstjórinn málið í sínar hendur, heim- sótti Jósef og krafði hann um eigur Bjarna, en Jósef neitaði sem fyrr. Stóðu þeir í nokkru þjarki um þetta, þar til hreppstjórinn sparkaði upp skemmuhurð, svo hún mölbrotnaði. Þar inni var dót Bjarna og tók hreppstjórinn það og fór sína leið. Ekki kærði Jósef þessar aðfarir og lét kyrrt liggja. En ekki fékk Jósef sér fleiri vinnumenn á meðan hann bjó á Felli. Það er því öruggt að þau Jósef og Ragnhildur voru ein með þetta stórbú alla tíð. Þótt þau bæði væru annáluð fyrir dugnað um allan Vopnafjörð, var þess vitanlega ekki að vænta að þau gætu heyjað fyrir þessum fjárfjölda, því auk fjárins átti hann einnig um 17 hesta og þrjá nautgripi. Fell var talin afbragðs útbeitarjörð, enda lifði féð og hestarnir að lang- mestu leyti á útigangi. Það lætur því nærri, að þar sem engar girðingar þekktust á þeim árum, þá hafi fé Jósefs gengið í lönd annarra jarða. Næsta jörð fyrir framan Fell er prestsetrið Hof. Það er stór jörð og land- mikil. Þangað sótti eðlilega fé Jósefs og var ekki við gert. Sama ár og Jósef fór að búa á Felli, fékk séra Sigurður P. Sivertsen veitingu fyrir Hofi, og voru þeir nágrannar í tólf ár, eða þar til Háskóli Islands var stofnaður og séra Sigurður skipaður dósent þar. Samkomulag þeirra Jós- efs var gott, enda mun Sigurður ekki hafa verið landsár og ekki fárast yfir því þótt féð á Felli gengi í landi hans. Þetta mat Jósef við Sigurð og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.