Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1995, Page 78
76
MULAÞING
reipi og fleira þess háttar. Þar voru geymdir garðávextir á haustin. Að
vetrinum voru kartöflur grafnar niður í bæjardyragólfið, og myndaðist
þar eins konar kjallari, sem reft var yfir og tyrft.
Að jafnaði var allvel rumt í bæjardyrunum. Það voru t.d. oft tvær rólur
fyrir okkur börnin, festar á austari miðbitann, og var hægt að róla sér á
fullum hraða.
Loft var í bæjardyrunum og var tæplega manngengt undir það. Voru
laus borð lögð ofan á þverbitana. Uppganga var í austurenda. Var notað-
ur laus rimlastigi til að komast upp á loftið. Þar uppi var tæplega mann-
gengt undir mæni.
Loftið var notað sem geymsla fyrir margvíslega hluti. Þegar nýrri bað-
stofan var byggð 1935, var loftið notað sem svefnpláss á meðan á bygg-
ingarframkvæmdum stóð.
Torfþak var á bæjardyrunum og hrístróð undir torfinu.
2. Frambúr (gamla búr)
Við norðurhlið bæjardyranna var bygging, sem kölluð var frambúr eða
gamla búr. Þetta hús var minna um sig en bæjardyrnar og lægra undir
loft. Torfstafn var á því fram á hlaðið og lítill gluggi upp undir risi.
Gólfhæð var sú sama og í bæjardyrunum, en húsið var allmikið niður-
grafið vegna hallans á hlaðinu, en það hækkar til norðurs.
Þetta hús var notað sem köld geymsla, því að hiti var þar nokkuð jafn,
hitnaði ekki mikið að sumrinu. Þar var því geymdur súrmatur og kjöt.
Þetta búr var rifið um það bil 1930-35.
3. Bœjargöng
Inn úr bæjardyrunum lágu göngin til baðstofunnar. Þau voru alllöng
með tveim vinkilbeygjum, lág undir loft, svo að hávaxnir menn þurftu
að ganga álútir. Göngin lágu fyrst til norðurs, síðan til austurs og loks til
suðurs inn í baðstofuna.
Hurð var fyrir göngunum, þar sem gengið var inn úr bæjardyrunum.
Önnur hurð var skammt frá inngöngunni í baðstofuna og loks hurð fyrir
dyrunum inn í baðstofuna. Engin læsing var á þessum hurðum, en felli-
útbúnaður var á næstinnstu hurðinni, lóð í bandi, sem fest var á dyraum-
búnaðinn yfir hurðinni.
Moldargólf var í göngunum.
Gluggi var yfir fremsta hluta ganganna og vísaði í vestur. Lagði skímu
frá honum inn á miðhluta ganganna.
Torfþak var yfir göngunum með flötu risi. Það lak stundum í stórrign-