Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1995, Page 165
MULAÞING
163
Moming Star, galias, 82,60 brtn. byggður 1882, skráður 1900.
Golden Hope, galias, 79,53 brtn.
El Dorato, galias, 86,96 brtn. byggður 1886, skráður 1900.
G. I. C. galias, 83,26 brtn. byggður 1888, skráður 5/6 1900.
Öll framanskráð skip voru búin gufuspilum til togveiða. Auk þeirra
voru þrír togarar, sem voru gufuskip og byggðir úr járni. Hétu þeir:
Snœfell 235,38 brtn. byggður 1884, skráður 28. ágúst 1899, Norðfjörð-
ur 106,60 brtn. skráður 24. ág. 1900 og Esbjerg.
Skipin fiskuðu vel um sumarið. Togaramir voru á veiðum fyrir Aust-
urlandi og Suðurlandi. Fimm galiasar veiddu kola með dragnótum á
grunnmiðum við Austfirði, en þrjár skútur stunduðu þorskveiðar með
handfærum.
Um miðjan júlí gerðu fimm skipstjórar og yfirmenn á togurunum
verkfall vegna tregðu á kaupgreiðslu og lélegs fæðis. Verkfallsmenn á
togurunum sigldu þeim til Englands og voru þeir þar með úr sögunni
fyrir Garðarsfélagið. Smiðirnir við íshúsbygginguna gerðu einnig verk-
fall og var byggingu íshúsanna hætt. Dragnótaskúturnar fiskuðu mjög
vel, en afli þeirra varð ónýtur þar sem togararnir, sem fluttu aflann á
markað, voru farnir og húsin íslaus þar eð þau voru ekki fullbúin. Ut-
gerðin stöðvaðist nú á besta tíma um miðjan ágúst.
Kolinn var geymdur í dammi, þ.e. lestamar voru sjófullar og sjórinn
féll út og inn um raufar á skipssíðunum. Einnig voru svokallaðir lúru-
kassar notaðir til geymslu á kolanum, en það voru bátslaga kistur með
loki að ofan en mjóum raufum á hliðunum, og voru þær dregnar á eftir
skipunum.
í marsmánuði 1901 var ákveðið að Garðarsfélagið hætti starfsemi, og
13. apríl ákvað aukaaðalfundur að slíta félaginu og afhenda skiptaráð-
anda eignirnar til opinberrar meðferðar. Hinn 25. júní 1901 var eftirfar-
andi auglýsing í blaðinu Bjarka:
„Samkvæmt ákvörðun skiptafundar 15. þ. m. í búi Garðarsfélagsins
hér á Seyðisfirði, verður haldið opinbert uppboð á eignum nefnds félags
hér í bænum, fimmtudaginn 26. september næstkomandi og næstu eftir-
farandi daga. Verða þar seldar: Húseignir félagsins, tvö fbúðarhús, íshús,
salthús og fiskhús sambyggð; tveir skúrar á Búðareyri, til niðurrifs; þrjú
sambyggð íshús. Hafskipabryggja með jámsporum; fimm stór fiskiskip
með útbúnaði. Veiðarfæri: botnvörpur, nýjar og brúkaðar, botn-
vörpuslöngur, bómur, botnvörpupokar, trawlböjur, kolanet, síldamet,
línur og línubjóð, trássur, strengir, dufl o.fl. Húsbúnaður ýmiskonar.
Smíðaáhöld. Björgunarbelti. Saumur. Farfi. Hnífar. Timburrusl. Tómar