Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Blaðsíða 10
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 20096
Í október 1973 hófst kennsla í
hjúkrunarfræði í Háskóla Íslands, þá
í námsbraut innan læknadeildar. Það
átti eftir að reynast afdrífaríkt. Þó að
hvatamenn hafi verið framsýnir gerðu
líklega fáir sér grein fyrir þeim breytingum
sem hjúkrun sem fræðigrein myndi taka
næstu 30 árin.
Marga Thome var ráðin stundakennari
við námsbrautina 1974 og hefur verið
fastráðinn kennari síðan 1977 eða
samfleytt í 32 ár. Hún varð dósent 1980
og fékk framgang sem prófessor 2006. Á
þessum árum hefur hún tekið virkan þátt í
að byggja upp öfluga hjúkrunarfræðideild.
Marga getur nú horft til baka á mikið
SJÁLFSTÆÐ HUGSUN BYGGIST Á
ÞEKKINGARSKÖPUN
Christer Magnusson, christer@hjukrun.is
breytingatímabil í hjúkrunarfræði á Íslandi.
Í viðtali við Tímarit hjúkrunarfræðinga
notar hún tækifærið að líta yfir farinn veg.
Kennarinn og manneskjan Marga
Þeir sem þekkja Mörgu lýsa henni sem
sérstakri manneskju sem lætur lítið yfir
sér en lætur verkin tala. Hún er samkvæm
sjálfri sér, mikill vinur og mannvinur. Marga
er hógvær kona og virðist hlédræg en býr
yfir innri krafti sem sýnir sig í því sem
hún hefur áorkað í starfi. Hún vill ekki
mikið tala um eigin persónu heldur er í
viðtalinu strax farin að tala um rannsóknir
og fræðistörf. Hún féllst þó á að segja
nokkur orð um sinn bakgrunn.
Marga útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur
í Þýskalandi 1963 og sem ljósmóðir í
Sviss 1965. Á námsárunum í Þýskalandi
kynntist hún íslenskum manni en hann
lést skyndilega haustið 2007. Marga
lauk svo námi í kennslufræði fyrir
hjúkrunarkennara í Þýskalandi en var ekki
ánægð með hlutverk hjúkrunarkennarans.
„Á þeim tíma var engin þekkingarsköpun
í starfinu – við áttum bara að taka við
þekkingu annarra og kenna öðrum hana.
En sjálfstæði í hugsun fylgir því að skapa
þekkingu,“ segir Marga ákveðin. Hún
fluttist til Íslands haustið 1973 og fór í
janúar 1974 að vinna í námsbrautinni.
Ári seinna fór hún til Bretlands í
meistaranám. Þar sem hún var ekki með
Rannsóknarvirkni hjúkrunarfræðinga er nú orðin töluverður eins og sjá má í
þessu tölublaði. En hvað varð til þess að þetta ferli hófst? Ein af þeim sem var
með frá upphafi er Marga Thome, prófessor og forstöðumaður fræðasviðs
um geðvernd eftir fæðingu í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands.
„Það sem kannski hefur heillað mig mest er að líta á starfsvettvang okkar sem uppsprettu fyrir vísindi,“ segir Marga Thome.