Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Page 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.09.2009, Page 35
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 4. tbl. 85. árg. 2009 31 Ritrýnd fræðigrein gagnasafnins sem notað er við þessa rannsókn, enn fremur að lýsa eftirlætisvistarverum skjólstæðinga hjúkrunarheimila til dægrastyttingar og tómstundum sem þeir helst kjósa. Þannig var reynt að varpa ljósi á hvaða þættir skipti mestu máli og hvað gæti orðið til að auka virkni til dægrastyttingar og hvað til að letja. Dægrastytting er hluti af þeim virku athöfnum sem hver og einn þarf á að halda til að lifa innihaldsríku lífi. Virkni vísar gjarnan til þess að vera virkur við ýmsar athafnir svo sem vinnu eða aðrar athafnir daglegs lífs, svo sem þvott, klæðnað o.s.frv. (Jón Hilmar Jónsson, 1994; Mörður Árnason, 2002b). Þá vísar virkni líka til þeirra virku athafna sem einstaklingur stundar sér til afþreyingar og dægrastyttingar. Það er sú merking sem notuð var í þessari rannsókn. Dægrastytting merkir afþreyingu, dægradvöl eða skemmtun (Mörður Árnason, 2002a). Það segir því til um hvernig fólk styttir sér daginn með því að skapa sér ánægju, vellíðan og innihaldsríkara líf. Virginia Henderson (1976) skiptir frumþörfum sjúklinga og einstökum þáttum almennar hjúkrunar niður og einn þáttinn nefnir hún skemmtanir, „að taka þátt í ýmiss konar skemmtunum eða dægradvöl“. Það sem hér er nefnt virkni til dægrastyttingar kallar Henderson skemmtanir eða dægradvöl og hún segir skemmtun eða leik venjulega hafa annan tilgang en hin daglegu störf, þ.e. að láta tímann líða á ánægjulegan hátt án þess að hafa annað að markmiði. Henderson segir líka (1976) „Þeir sem eiga starfsgleði í ríkum mæli kunna því eflaust illa að skörp skil séu dregin milli starf- og skemmtitómstunda.“ Rantz og Popejoy (2001) benda á að nýrri kenningar varðandi virkni ganga út frá því að könnuð sé virkni og atburðir í lífi eldri einstaklinga með þeim aðferðum að yfirfara lífshlaup einstaklingsins og upprifjun minninga (reminiscence). Þær aðferðir hafa rutt sér til rúms við umönnun aldraðra og þá sérstaklega að því er varðar dægrastyttingu. Virkni til dægrastyttingar á hjúkrunarheimilum á Íslandi hefur ekki verið rannsökuð áður á þann hátt sem hér var gert. Hins vegar hafa verið dregnar saman tölulegar niðurstöður úr árlegum RAI-mælingum hér á landi sem hafa þá meðal annars sýnt takmarkaða virkni meðal íbúa hjúkrunarheimila. Samkvæmt skýrslunni Daglegt líf á hjúkrunarheimili (Anna Birna Jensdóttir o.fl., 1995), sem byggðist á fyrstu mælingum sem voru gerðar hér á landi með RAI-matstækinu árið 1994, voru 17,8% íbúa í hjúkrunarrými á höfuðborgarsvæðinu virkir í daglegum athöfnum en 13,4% í hjúkrunarrými á Akureyri. Milli 70 og 80% þessara íbúa vörðu engum eða litlum tíma í virkar athafnir á höfuðborgarsvæðinu en yfir 80% á Akureyri. Hjá báðum þessum hópum voru eftirlætisvistarverur til virkni eigið herbergi og flestir kusu að horfa á sjónvarp eða hlusta á útvarp. Höfundar skýrslunnar benda því á að takmörkuð virkni íbúa í hjúkrunarrými bendi til þess að á þessu sviði mætti bæta um betur. Dægrastytting gerir oft kröfur um tíma til samskipta og samveru bæði milli starfsfólks og heimilismanna svo og góðra samskipta allra aðila við aðstandendur. Í rannsókn Ingibjargar Hjaltadóttur (2001), þar sem líkamlega veikburða aldraðir á hjúkrunarheimili voru spurðir hvað væri mikilvægast varðandi gæði lífs á hjúkrunarheimili, kom fram að samskipti við aðstandendur og starfsfólk skiptu miklu máli, auk þess að finna öryggi og hafa eigið herbergi. Dobbs o.fl. (2005) athuguðu hvað gæti orðið til að auka virkni á hjúkrunarheimilum og komust að því að þátttaka fjölskyldu í félagslífi og í mati á virkni tengdist meiri virkni heimilismanna. Sama gerðist ef starfsfólk hvatti til aukinnar virkni. Upprifjun minninga er ein af þeim aðferðum sem hafa verið notaðar til dægrastyttingar á hjúkrunarheimilum. Á þeim byggist sú upplýsingasöfnun sem aflað er nú orðið á mörgum hjúkrunardeildum fyrir heilabilaða með svokölluðu æviágripi, en upplýsingar um æviágrip skjólstæðinga eru nauðsynlegar fyrir upprifjun minninga. Vegna skertrar færni heimilismanna verður starfsfólk hjúkrunarheimila oft að treysta algjörlega á upplýsingar um æviágrip frá aðstandendum við að meta þarfir í tengslum við fyrri venjur, reynslu og sérkenni. Meðferð með upprifjun minninga gerir kröfur til þess að starfsfólk gefi sér tíma með skjólstæðingunum til að sinna dægrastyttingu í þeim tilgangi að láta fólki líða vel og eiga innihaldsríkar stundir. Sejeroe-Szatkowski (2002) bendir líka á að heilabilaðir, sem oft eru óöruggir, muna fortíðina mun betur en nútíðina og upprifjun minninga getur orðið til þess að þeir finni öryggi í tengslum við eitthvað sem þeir þekkja. Buettner og Kolanowski (2003) hafa bent á að leiðinn og einangrunin, sem kemur til vegna skorts á dægrastyttingu, geti leitt til hluta þess óróleika og óvirku hegðunar sem sést hjá þessari kynslóð aldraðra með heilabilun. Heimilismenn, sem eru órólegir eða í uppnámi, slaka betur á þegar notaðar eru markvissar aðferðir til dægrastyttingar eins og tónlist, snerting og handarnudd og það hefur síðan jákvæð áhrif á vellíðan og samvinnu (Clark o.fl., 1998; Sambandham og Schirm, 1995; Snyder o.fl., 1995). Rannsóknarniðurstöður hafa enn fremur sýnt að heimsóknir aðstandenda hafa góð áhrif á suma heimilismenn sem eru órólegir og að heimilismenn eru frekar órólegir þegar þeir hafa ekkert fyrir stafni (Cohen- Mansfield o.fl., 1992). Það er því mikilvægt að starfsfólk hvetji aðstandendur til heimsókna og samskipta við sína nánustu á hjúkrunarheimilum. Vanda þarf vel til klínískrar greiningar á skorti á dægrastyttingu. Það eykur líkur á að valin sé rétta eða hentugasta meðferðin. Það sem einum finnst vera dægrastytting er ekki víst að annar upplifi sem svo. Hjá einum einstaklingi gæti það að sitja og horfa út um gluggann verið merki um leiða en öðrum þætti það notalegt og liti á það sem hluta af sinni dægrastyttingu. Starfsfólk þarf því ætíð að taka mið af hverjum einstaklingi fyrir sig. Einnig er mikilvægt að taka mið af aðstæðum og ástandi einstaklingsins hverju sinni, þ.e. hvað geta hans leyfir. Rantz og Popejoy (2001) telja upp eftirfarandi neikvæð einkenni sem geti fylgt ef skortur á dægrastyttingu er ekki greindur, þ.e. leiði, minni lífsánægja, þunglyndi og frekari afturför í líkamlegu þoli, samstillingu og vitsmunalegri getu.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.