Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 37

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Síða 37
hvor annarri núna þegar það var orðið of seint? Henni fannst að móðir hennar hefði átt að segja einhvern daginn: Catarína, ég er hún mamma þín. Og hún hefði átt að svara: og ég er dóttir þín. — Varaðu þig á súgnum! kallaði Catarína. — Jæja telpa mín, núna er það víst ég sem er orðin krakkinn, sagði móðirin og hætti ekki að hafa áhyggjur af útliti sínu. Hún var freknótt, dálítið óstyrk og lagaði fínlega barðið á hattinum og Catarínu langaði allt í einu til að spyrja hvort hún hefði verið hamingjusöm með föður hennar. — Berðu frænku kveðju! kallaði hún. — Já, já! — Mamma, sagði Catarína þegar langt blístur heyrðist og hjólin fóru nú á hreyfingu í gufustróknum. — Catarína! sagði gamla konan opinmynnt og hrædd í augunum, og dóttirin sá, að við fyrsta kipp lestarinnar bar hún hendurnar að hattinum sem féll niður á nefið, svo aðeins nýju tennurnar sáust. Lestin var komin á skrið og Catarína veifaði. Andlit móðurinnar hvarf andartak, svo kom hún í ljós, hattlaus; það hafði losnað um gráa hnútinn í hnakkanum svo grátt hárið féll yfir axlirnar eins og á ungmey — hún hallaði höfðinu án þess að brosa og sá kannski ekki lengur dóttur sína í fjarlægð. Catarína lagði af stað heim í reykmekkinum með hnyklaðar brúnir og illgirni í tileygðum augnsvipnum. Þegar hún var laus við móður sína varð göngulagið öruggt á ný: það var miklu auðveldara að vera einsömul. Nokkrir karlmenn litu á hana, hún var ljúf, örlítið þyngslaleg. Hún gekk hægt, var nútímaleg í klæðaburði, hárið stutt og litað kastaníubrúnt. Hlutirnir höfðu æxlast þannig að hún fann unað í kveljandi ást — allt var svo lifandi og milt þarna í kringum hana á óhreinni götunni: gömlu sporvagnarnir og appelsínubörkurinn — krafturinn streymdi ákafl um hjarta hennar eins og voldug auðlegð. Á þessu andartaki var hún undurfögur, svo fín, í algeru samræmi við tímann og borgina þar sem hún fæddist eins og hún hefði valið staðinn sjálf. Hver maður hefði getað séð í tileygðum augnsvipnum að þessi kona unni jarðneskum hlutum. Hún horfði áköf á fóikið, reyndi að festa í fólkinu á hreyfingu þann unað sem var ennþá rakur af tárum vegna móðurinnar. Hún vatt sér undan bíiunum, tókst að komast að strætisvagninum og lék á biðröðina, horfði kaldhæðin á svip; ekkert mundfgeta hindrað að þessi litla kona sem ráfaði þama um kæmist einu dularfuilu þrepi ofar í stiga ævidaga sinna. Lyftan suðaði í hitanum frá ströndinni. Hún lauk upp dyrunum á íbúðinni, tók af sér hattinn með hinni hendinni og virtist albúin því að njóta örlætis alls heimsins, á þeirri leið sem móðir hennar hafði skilið eftir opna í brjósti hennar. Antonío lyfti varla augunum frá bókinni. Hann hafði alltaf „átt“ sína laugardaga sjálfur, og nú þegar Severína var farin endurheimti hann þá með ánægju við litla skrifborðið. — Er „hún“ farin? — Já, svaraði Catarína og ýtti upp dyrunum á herbergi sonar síns. Jæja, þarna var strákurinn, hugsaði hún og henni létti allt í einu. Þetta var sonur hennar. Magur og órólegur. Göngulag hans varð öruggt eftir að hann fór að geta gengið; en þó hann væri orðinn næstum fjögurra ára talaði hann eins og á-- LESIÐ MILLl LÍNA 37
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Jón á Bægisá

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.