Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 39

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 39
hans leiddi drenginn og óttaðist að núna, þegar bæði væru laus við hann, mundi hún tjá syni sínum...ja...hvað? „Catarína,“ hugsaði hann, „Catarína, barnið er sakleysingi!“ Á hvaða andartaki þrýstir móðirin barni sínu að sér til þess að færa því það fangelsi ástarinnar sem vofir endalaust yfir framtíð karlmannsins. Seinna, þegar sonur hennar væri orðinn að manni, aleinn, þá átti hann eftir að standa við þennan sama glugga og berja fingrum á rúðuna; fangelsaður. Neyddur til að svara látnum manni. Hver veit í raun og veru hvenær það er sem móðirin færir barni sínu erfðirnar. Og með hvaða drungalega unaði. Núna skildu móðir og sonur hvort annað í þeirri leynd sem þau deildu með sér. Síðan mundi enginn geta vitað á hvaða dökku rótum frelsi mannsins nærist. „Catarína,“ hugsaði hann reiðilega, „barnið er sakleysingi!“ En þau voru horfin niður á strönd. Orðin að sameiginlegum leyndardómi. „En hvað með mig?“ spurði hann skelkaður. Núna voru þau bæði farin einsömul. Og hann var einn. „Með laugardaginn sinn“. Og kvefið sitt. í snjTtilegu íbúðinni þar sem „allt gekk vel“. 1 Iver veit nema konan hans væri að flýja með drenginn burt úr mátulega björtu stofunni með velvöldum húsgögnum, frá gluggatjöldunum og málverkunum? Það var einmitt þetta sem hann hafði veitt henni. íbúð verkfræðings. Hann vissi að þótt konan notfærði sér stöðu ungs eiginmanns með bjarta framtíð, þá fyi'irleit hún hana líka með klóku augunum og fiúði með taugaveiklaða og magra soninn sinn. Maðurinn varð órólegur. Vegna þess að hún gæti ekki haldið áfram að veita honum athygli og ákjósanlegri árangur. Þó vissi liann að hún mundi hjálpa honum við að öðlast frama og hata það sem þeim lilotnaðist. Þannig var þessi stillta þrjátíu og tveggja ára gamla kona sem talaði aldrei í eiginlegum skilningi, eins og hún hefði verið alltaf á lífi. Sambúð þeirra var svo kyrrlát. Stundum reyndi hann að niðurlægja hana, fór inn í herbergið þegar hún var að skipta um föt því hann vissi að hún vildi ekki láta sjá sig nakta. Af hverju þurfti hann að niðurlægja hana? Þegar honum var fullljóst að hún yrði aðeins eins manns kona jafn lengi og hún fyndi til eigin stolts. En hann hafði vanið sig á að gera hana þannig kvenlega: niðurlægja hana blíðlega, og núna var hún farin að brosa — haturslaust? Kannski stafaði friðsamleg sambúð þeirra af þessu og rólegu samræðurnar sem gerðu andrúmsloftið heimilislegt fyrir barnið. Eða varð henni þó kannski stundum gramt í geði? Drengurinn var stöku sinnum gramur, sparkaði fótum, æpti upp úr martröð. Hvaðan var þetta iðandi barn sprottið ef ekki af því sem konan og hann höfðu uppskorið með daglegri umgengni sinni. Líf þeirra var svo friðsælt að ef andartaks gleði var í uppsiglingu, þá litu þau snöggt hvort á annað, næstum kaldhæðin, og úr augum beggja skein: við skulum ekki fara að eyða því, notum það ekki á hlægilegan hátt. Það var engu líkara en þau hefðu verið á lífi frá örófi alda. Núna liorfði hann úr glugganum, sá hana ganga hratt og leiða drenginn, og hann sagði við sjálfan sig: Ilún er að njóta unaðstundarinnar — alein. Ilonum fannst hann vera yfirgefinn, því langt var síðan hann hætti að geta lifað án hennar. Henni tókst að eiga sínar stundir — alein. Hvað hafði konan hans verið að gera til dæmis á milli þess að hún fór frá lestinni og kom heim? Það var ekki þannig að hann tortryggði liana, en hann hafði sínar áhyggjur. á- JföœpÁiá - LESIÐ MILLI LÍNA 39
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.