Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 49

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 49
frá stjóminni meðferðis, hengdi hana upp á veggi og las hana upphátt fyrir þá: „Ef bændur færast undan að gjalda jarðeigandanum sinn lilut, má tilkynna það liðsforingja eða yfirmanni herbúðanna til þess að sjá um að hlutur jarðeigenda verði innheimtur og afhentur þeim.“ Ég spurði, hvort þeir þekktu vald yflrmannsins. Ég útlistaði fyrir þeim, að það væri ég, hægri hönd yflrmannsins, sem þeir ættu að hlusta á. Ég útskýrði fyrir þeim, hvað innheimta og últjorgun væri í raun. En tók nokkur mark á því? Þið haldið því fram, að jarðeigandinn eigi að gefa ykkur jörðina og sáðkornið og borga kostnað við áveitur fyrir akrana — og það allt saman án þess að vita, hvort honum yrði nokkru sinni greiddur liluturinn sem hann átti sjálfur. Það stóðst — það kom engin útborgun! En nú er stjórnin orðin valdameiri og getur krafist tvisvar sinnum hærri útborgunar en áður. Við í lögregluliðinu erum líka orðnir mektugri en áður og getum því látið meira til okkar taka, amerískir herbúningar, amerískir frakkar, amerískir fiutningabílar, allt þetta höfum við fengið. Samt var enginn sem vildi hlusta á mig. Þeir spurðu hvað ég eiginlega meinti með hlut jarðeigandans! Þeir buðu mér ekki einusinni tebolla. En... nú... nú!“ Yfirliðþjálfmn rak upp skellihlátur og enn hélt hann áfram ræðu sinni: „En nú er komið að ykkur! En segðu mér eitt — hvað starfaðir þú? Varstu foringi? Kanntu að lesa og skrifa?“ Maðurinn frá Gílan hlustaði ekki á þetta raus og svaraði honum ekki. Það hafði tekið þá meira en fjórar klukkustundir að komast frá Túlam til staðarins þar sem þeir nú voru sladdir, og allan þann tíma hafði hann ekki haft frið fyrir Múhameð Valí. Hann hafði sífellt í hótunum við hann og lét hann aldrei í friði. Öll gremjan innra með honum bitnaði á fanganum. En maðurinn frá Gílan hugsaði ekki um annað en flótta. Hefði hann bara haft byssu eins og þá sem yíirliðþjálfinn hélt á, hefði þeim ekki tekist að grípa hann. Ef hann hefði haft vopn í hendi, hefði enginn liðþjálfi auðveldlega getað setið um hann við akurvinnuna til að handsama hann. Þetta voru svei mér góðar byssur, sem þeir höfðu þessir karlar! Ef Agólsmenn hefðu haft þó ekki væri nema eitt hundrað slíkra vopna hefði það nægt til, að enginn hefði þorað að nálgast skóginn. Hefði hann átt svona byssur, hefði margt orðið öðruvísi en nú var. Hefði hann borið skotvopn þennan dag, væri Soghra enn á lífi og hann hefði ekki orðið að snúa aftur til þorpsins og akurvinnimnar vegna brjóstmylkingsins og þola um leið hinar bitru ásakanir Agóls Lulmanís: „Þú ert enginn karlmaður — tekur að þér kvennastarf — að passa krakkann þinn!“ Ef hann og Agól Lulmaní hefðu haft eitt hundrað af þessháttar skotvopnum væri líklega enginn sem hefði nefnt jarðeigandahlut aftur. En var þörf á skotvopni? Fyndi hann bara sveran staf, skyldi hann brátt gera út afvið þennan eiturlyfjasólgna liðþjálfa. Hann óskaði þess, að hætti að rigna svo hann gæti komið auga á spýtu. Þá mundi hann skella sér til jarðar, grípa spýtuna, rétta snöggt úr sér og slá á byssustinginn, svo byssan félli úr höndum Múhameðs Valís. Þannig væri þá annar hermannanna úr sögunni. En hann var ekki nema þrjú skref fyrir framan hann. Nærvera hans hlaut að verða honum hindrun í slíkri ráðagerð. Hann þekkti ekki þennan hermann. Hann hafði aldrei staðið augliti til auglitis við hann og hafði aldrei talað orð við hann. Það félli honum þungt að drepa mann sem hann hefði aldrei séð áður, né átt neitt samneyti LESIÐ MlLLl LÍNA 49
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.