Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 55

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 55
hverju leyfirðu mér ekki að sofa? Af hverju heldurðu áfram að kvelja mig? Hjálpaðu mér heldur. Hvað villu mér eiginlega?" En spurningarnar náðu aldrei eyrum hins. Þær drukknuðu í hávaðanum frá bylgjuhafl storms og rigningar. „Ekki öskra svona. Bara rólegur! Þú færð hana — ég er búinn að lofa þér því. Efvið komumst lil Fumen erúti um þig. Þú hefur líklega heyrt, að rútubíll var stöðvaður miðja vegu og rændur. Síðan eru allir teknir fastir sem hafa náðst. Ég er múslími og trúi á Guð og Spámanninn. Guði væri ekki þóknan- legt...“ Þetta í-óaði manninn frá Gílan. Þeir hafa handsamað marga! Þeir ætla sér þá bara að yfirheyra okkur. „Af hverju öskrar þú svona? Þú færð hana! Ég vil meira að segja selja þér hana. Þú átt hana svo sem fyrir. Ef ég skrifa í skýrsluna, að skammbyssan hafi fundist í þínu húsi, þá veistu sjálfur, að gálginn er þér vís. Þú getur key]3t hana af mér aftur fvrir fimmtíu tómana. Ertu enn með peningana á þér eða hefurðu gefið þá einhverjum öðrum?“ Maðurinn frá Gílan var orðinn rólegur og titraði ekki lengui-. Hann dró pinkilinn sinn fram úr teppinu, losaði um hnútinn og tók peningana upp úr honum. Það voru tveir fimmtíu tóinana seðlar, sem voru orðnir að blautri klessu. „Hérna, komdu og taktu þelta.“ Nú var það lögregluþjónninn frá Baludj sem varð hræddur. „Nei, svona förum við ekki að! Þú steudur upp, snýrð við mér baki, stingur peningunum í vasa þinn, ég næ peningunum upp úr vasanum og læt skammbyssuna í sama vasa. Á meðan heldurðu höndunum yfir höfðinu. Ég mola sundur á þér hausinn með byssuskeftinu, efþú hreyfir þig. Efþú hefur hugsað þér að leika á mig, er eins gott að þú vitir, að ég kann öll brögð sem til eru — gömul sem ný. Láttu það því ógert. Meðan ég er á vakt snýrðu í mig baki. Ef þú bærir á þér færðu kúlu í magann. Undireins og ég er farinn geturðu svo gert við yfirliðþjálfann það sem þér sýnist." Eintóna hægfara vatnsrennslið úr þakrennunni hrelldi manninn frá Gílan. Þetta lága suð í öllum stormofsanum og rokinu varð til þess, að hann örvænti enn frekar. Hann studdi höndum á vegginn fyrirframan sig. Stakar vindhviður sveilluðu öðruhverju hvítlauksknippunum, sem héngu uppi undir loftinu, fram og aflui' svo það killaði í fingurgómana. Gegnvot baðmullarskyrtan límdist við bakið. Hann fann fyrir þyngd byssunnar í vasanum. Stundum héll tíann niðri í sér andanum í von um að heyra betur hljóðin, sem hann beið eftir og þráði, fótatak Múhaineðs Valís í tréstiganum. Endrum og eins slotaði storminum og tilbreytingarlaust regnstreymið hægðist. Þá kvaldi eintóna vatnsrennslið úr þakrennunni manninn fi'á Gílan minna. En ekki heyi'ðist neinn ganga um stigann. Allt í einu hrópaði lögregluliðinn frá Baludj: „Hæ, hæ, Múhameð Valí!“ Manninum frá Gílan létti — nú var eitthvað að gerast. „Hæ, hæ, Múhameð Valí!“ Maðurinn frá Gflan lagði ákaft við hlustir til að fylgjast með umgangi í stiganum. Þegar Múhameð Valí leysti lögregluliðann frá Baludj af, varð hann að vera tilbúinn að nota þær fáu sekúndur, sem þeir töluðu saman og gætu líklega ekki heyrt hanrí hreyfa sig, til að snúa sér við, draga bys'suna upp úr vasanum og gera hana skothæfa. fir// // ./jf/y/iri' - LESIÐMILLI LINA 55
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.