Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 94

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 94
ekki lengur á lífi rúmast gærdagur mannsins líka í nútíð hans. Meira að segja flugmaðurinn sem hrapaði og skipti hann einungis máli óbeint, E. B. bar alltaf myndina af honum með sér í töskunni. Það small undarlega í rafmagns- klukkunni, þetta hljóð vakti athygli hans. Það small líka í tösku E. B. og hún opnaðist. Að hverju ertu að leita í töskunni minni? Myndinni... Æ, myndinni? Ég er ekki með hana á mér. Ég hef komist að því að það borgar sig ekki að burðast með þá dauðu. Oft mundu þeir láta sig sökkva niður úr gólfinu af blygðun. Heldurðu að þeir dauðu hafi sterkari blygðunartilfinningu en þeir sem lifa? Nú auðvitað. Þeir gleyma holdleika sínum fyrr eða síðar. En ég elska þig ekki bara svona, ekki bara í rúminu, ekki bara þegar við dönsum, ekki bara þegar þú leggur mig þér á munn, helst mundi ég éta þig upp til agna ásamt hugsunum þínum. Það gengur ekki hvað sem öðru líður. Giftum okkur. E. B. sat á hækjum sér í rúminu. Hún fór vísifingri yíir þykkt svart hárið. Ég fæ svo há eftirlaun eftir flugmanninn sem hrapaði, það er betra svona. Hún strauk nakta bringu H. og iingur hennar reikuðu sífellt neðar. H. hrökk í kút. Ennið á mér kemst aldrei að. Þess þarf heldur ekki. E. B. hnipraði sig þrjóskulega saman. Bak við ennið á þér er hara það sem þú hefur lært. Og því sem maður hefur lært gleymir maður fyrr eða síðai-. Kannski ekki þú, því þú gerir það sem þú hefur lærl. En ég, ég hara lifi. Skiptir það einhverju? Nei, það skiptir engu. Auk þess elskar þú tónlist, fallegar myndir... Auðvitað elska ég þær. Það breytir engu að ég veit ekki hvað einstök verk heita eða hvaða málverk er málað í hvaða stíl. Ég skal skýra það út fyrir þér. Nei, skýrðu það ekki út fyrir mér. Um mig veist þú líka jafn lítið. Maður þyrfti að ræða svo margt. Ó, ég þekki þig, meira að segja mjög vel. Ég þefa af náttfötunum þínum og veit, þetta ert þú. Ég þekki rödd þína og snertingu handar þinnar þegar þú heldur fyrir augun á mér. Ég þekki líka hvernig þú liugsar þegar þú ætlar að kenna mér eittlivað ílókið, sjáðu, ég hef lagt það á minnið að lokaþáttur Bachs endar á allegro molto. I borg frá því fyrir þrjátíu árum getur maður gengið gegnum veggina, klifrað upp á kirkjuturninn, stigið út um hótelgluggann og þannig getur rnaður líka hniprað sig niður undir nálum furutrjánna. En stígi einhver ekki út um gluggann út á skógargötuna hvað ætli hann þurfi þá að ganga marga metra? Líklega hafði E. B. strax á leiðinni úl að furutrjánum opnað klaufina hjá H. og smeygt hendinni inn í buxurnar. Allegro molto! sagði hún sigri hrósandi. En hvernig hljómaði annars þetta allegro molto? Hjá Bach samsvarar rödd hnéfiðlunnar slaghörpuhlutanum, rödd E. B. hljómaði eins og hnéfiðla og slagharpa í senn, í raddblæ hennar sveif líka vottur af ásökun: alltaf viltu lialda hlutunum aðgreindum. Þótt allt sé tómt hið innra. Allt er einhvern veginn gott og einhvern veginn vont. Réttara sagt hvorki gott né vont, allt tengist einhvern veginn öllu. Nei, þetta voru ekki lengur orð E. B. Hún getur hara hafa sagt: þú vilt halda því aðgreindu, þú vilt haida því aðgreindu... Já, þess þyrfti, en það gengur ekki. Skvaldrið í hinum, árin, fjar- lægðin setja allt í bendu. Hérna, undir furutrjánum í Maríulaugum, gekk auðvilað allt að óskum. Hérna rambaði hjól tímans ekki út á skjön, það var engin fjarlægð, einungis snerting E. B. Já, snerting liennar. Kannski er það þetta sem gildir framar öllu öðru. H. starði á standlampann og hrökk í kút andspænis ljósinu sem skall á andliti hans. Auðvitað var bragðið líka núlulvægt. 94 TÍMARIT hÝÐENDA 1994
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.