Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 103

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 103
Óhljóðin í hausunum sjö tóku óskaplega á taugarnar og í stað milda ilmsins af kölnarvatni fríða mannsins var kominn svo mikill brennisteinsfnykur að ég tók andköf. Ég tók stökk afturábak, hrasaði um stól og skall kylliflatur á gólílð. „O, andskotinn!“ hrópaði ég upp yfir mig og á svipstundu var drekinn horfinn, en fríði maðurinn stóð yfir mér. „Jæja, það er þá loksins runnið upp fyrir þér,“ sagði hann og hjálpaði mér á fætur. Ég stóð ekki uppréttur eitt andartak. Ég kann að játa mig sigraðan og féll samstundis á kné. „Göfugi herra,“ sagði ég og vegna þess að röddin virtist ekki skjálfa nógu eðlilega bætti ég svolitlum titringstón við með brögðum, „göfugi herra, hvað þóknast yður?“ „Mér þóknast að þú standir upp og hættir þessum forneskjulegu látalátum,“ sagði andskotinn — því nú var orðið deginum ljósara hver gesturinn var. „Þið vesælir dauðlegir menn haldið ykkur við það heygarðshorn að láta eins og mér hafi ekkert farið fram síðan á sextándu öld. En ég lifi utan við tímann og þess vegna er ég alltaf fyllilega í takt við hann.“ „Allt í lagi,“ sagði ég og reis á fætur, „hvað get ég gert fyrir þig? Það er fyrirtaks kvöldverður til reiðu á efri hæðinni í bókasafninu, en ef þú hefur meiri hug á einni fordæmdri sál eða svo, þá er útlátalítið að útvega þér nafnaskrá háskólans með gagnleguin athugasemdum úti á spássíu.“ „Æ, æ, æ,“ sagði hann, „mikið hlýturðu að halda að ég sé ómerkilegur andskoti. Ég kæri mig ekki um neinn af styrkþegunum þínum, og engan af starfsbræðrum þínum heldur. Svoleiðis handverk læt ég starfsfólki mínu eftir.“ Afskaplega yfirþyrmandi hugsun — uppfullri af hégómaskap — laust niður í huga minn. Ég reyndi að bæla ofdrambið í röddinni og hvíslaði: „Ertu þá kominn að sækja mig?“ Andskotinn hló — það var silfurskært hæðnisfliss, ef þið getið gert ykkur slíkt í hugarlund — og gaf mér glettnislegt olnbogaskot í bringuna. „Æ, láttu ekki svona og hættu að fiska eftir gullhömrum,“ sagði hann. Það var olnbogaskotið sem kom mér aftur á réttan kjöl. Mér hafði alltaf verið sagt að andskotinn væri rusti inn við beinið og nú var hann búinn að sýna það og sanna, svo ég varð óhræddari. „Jæja,“ sagði ég, „ég er viss um að þú ert ekki kominn hingað að ástæðulausu og ef þú vilt ekki sálir — ekki einu sinni svo ákjósanlega andlega eign sem mína eigin sál — hvað mætti þá bjóða þér?“ „Ekkert annað en að fá að skoða vel þessa snotru altarisbrík,“ svaraði hann. „Þér finnst það vafalaust undarlegt, en á þessum árstíma, þegar allir eru að halda jólin hátíðleg, þá verð ég svolítið angurvær. Ég heyri svo marga segjast ætla heim um jólin. Veistu það, rektor minn, að mig langar svo mikið heim um jólin.“ Ég var of háttvís til að svara. „En mér verður auðvitað ekki boðið,“ sagði hann og varð svo viðkvæmnis- legur og dapur á svipinn að fallega þóttafulla andlitið á honum ummyndaðist í einhverja mestu hryggðarmynd sem ég hef nokkurn tíma augum litið. Þegar ég var barn naut saga eftir Marie Corelli sem hét Sorgir Satans enn mikillar hylli, en jafnvel henni hafði ekki fiogið í hug að eitt sorgarefnið væri að vera ekki boðið heim um jólin. á Jffiœp/'iá ~ LESIÐ MlLLl LÍNA 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.