Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 106

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 106
ugur. Mér til mikillar furðu sá ég að andskotinn var tvítóla og vel vaxinn niður. En það verður þó að segjast að fimm ár við Masseyskóla liafa búið mig vel undir óvenjulegar uppákomur af öllu tagi. „Góði — æ — erkiengill!“ hrópaði ég. Og síðan hikstaði ég upp þrautreyndum hvatningarfrasa ráðgjafans. „Þarna sérðu, þú getur allt ef þú bara reynir. Svona, þessi fólskulega árás á jólin er fyrir neðan virðingu þína. Finnst þér ekki nóg komið? Þú veist að fólk heldur jólin enn hátíðleg, í anda sem á ekkert skylt við jólakort, málamyndagjafir, niðurlægingu jólasveinsins —“ ég ætlaði mér að halda áfram því ég var að hugsa um kvöldið í kvöld og okkur öll hérna, en djöfullinn leit á mig harmþrungnum augurn. „Já, en það er allt vegna hans — litla bróður míns, skilurðu. Það mætti halda að enginn annar hafi nokkurn tíma átt afmæli. Ekki heldur neinn upp á afmælið mitt.“ Ég leit á hann og því megið þið trúa — hann var kominn með stút á munninn. Það er ekki til einskis sem ég er prófessor í leikhúsfræðum: ég þekki stikkorð þegar ég heyri þau. „Ilættu að sýta,“ sagði ég, „ég skal halda upp á afmælið þitt.“ „Iss,“ sagði hann, „hver ert þú sosum?“ „Aha,“ sagði ég, „þú ert að reyna að leggja snöru ofdrambsins fyrir mig. En samt er þér fullkunnugt um hver ég er, án þess að ég þurfi að segja þér það.“ Hann sá sóma sinn í að verða svolítið sneyptur á svip. „Ja, það má vel vera, en hver mundi taka efiir því?“ „Allur háskólinn tekur eftir því,“ sagði ég. „Iss! Háskólinn!“ sagði hann dónalega, en var á báðum áttum. „Þetta er skóli til framhaldsnáms," sagði ég, „og það sem meira er, hann er hugmyndabanki." Ég vissi að andskotinn gæti ekki staðist það nýjasta nýja í sérfræðingaslangri. „Þá er það ákveðið!" sagði hann. „Hvað ætlarðu að gera?“ „Ég flagga með skólafánanum og læt hringja Katrínarklukkunni tuttugu og einu sinni.“ „Alveg eins og ég væri prófessor?“ spurði hann og í augunum var blik sem leit allra helst út fyrir að vera gleðiglampi. „Nákvæmlega eins,“ svaraði ég. „Og hvaða dag er svo afmælið?“ Hann hikaði, en aðeins örstutta stund. „Veistu hvað, þetta hef ég aldrei sagt nokkurri sál. Það er —“ og hann hvíslaði dagsetningunni í eyrað á mér. Mér varð óþægilega heitt á eyranu af andardrættinum, en ég finn núna að ég heyri betur með því en hinu. Allir segja að djöfullinn eigi sína ruddahlið, en það er nákvæmlega sama fólkið sem segir við önnur tækifæri að hann sé séntilmaður. Og það var sú hliðin sem hann kaus að snúa fram á þessari stundu. „Þú ert verulega hugulsamur,“ sagði hann, „og mig langar að endurgjalda þér á viðeigandi hátt. Hvað langar þig í — og vertu svo vænn að halda ekki afiur af metorðagirndinni.“ Ég mælti ekki orð af vörum og næstum samstundis fór andskotinn afiur að hlæja — þessum silfurskæra hlátri sem ég hafði heyrt áður. „Ég skil þetta vel, auðvitað ertu að hugsa um Fást. En hann færði mér bara frekar útjaskaða sál, 106 á Jföayáá ~ TÍMARIT tÝÐENDA 1994
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.