Jón á Bægisá - 01.11.1994, Qupperneq 108
Erlendir höfundar
BozorgAlaVÍ fæddist 1904 í Teheran, stundaði nám í Þýskalandi og helgaði
sig bókmenntaiðju og pólitískri baráttu er heim kom. Hann var einn af
stofnendum Túde-flokksins, íranska kommúnistaflokksins, og sat í fangelsi
frá 1938 uns Reza Shah íranskeisari sagði af sér 1941. Ilonum varð þó ekki
vært í íran og fór í útlegð til Þýska alþýðulýðveldisins þar sem hann varð
prófessor í persneskum bókmenntum við Humboldt-háskólann í Berlín. Alavi,
Sajíd Muhammed Ali Djamalzade og Sadiq Hidajat teljast til brautryðjenda
íranskra nútímabókmennta sem löngum hafa verið lítt þekktar í Evrópu en
tékkneski persneskufræðingurinn Jan Rypka á heiðurinn af því að hafa komið
þeim á framfæri skömmu fyrir seinni heimsstyrjöld. Hann hreifst mjög af
frásagnarlist Alavis í fyrsta smásagnasafni hans, Tshamadan (Taskan) sem
kom út 1935 en síðan hafa komið út eftir hann bæði smásagnasöfn og skáld-
sögur. Sagan sem hér birtist mun vera fyrsta skáldverkið sem þýtt er beint úr
persnesku á íslensku.
Yehuda Amichai fæddist 1924 í Þýskalandi, var alinn upp í gyðinglegum
rétttrúnaði og hlaut U'úarlega menntun. Árið 1936 fluttist hann ásamt fjölskyldu
sinni til Palestínu þar sem hann hefur dvalist meginhluta ævinnar. Árum saman
vann hann fyrir daglegu brauði með kennslu. Fyrsta ljóðabók lians birtist 1955,
en síðan hafa komið frá honum tíu ljóðasöfn, auk skáldsagna, smásagna og
leikrita. Ljóð hans hafa verið þýdd á ríflega tuttugu tungur.
Mikhaíl Búlgakov. Eflir Mikhaíl Búlgakov (1891—1940) hafa komið
út þrjár skáldsögur í íslenskri þýðingu: Master y Margarita (Meistarinn og
Margaríta — Mál og menning 1981 og íslenski kiljuklúbburinn 1993), Rokovye
jaitsa (Örlagaeggin — íslenski kiljuklúbburinn 1989) og Sobatsje sjerdtse
(Hundshjarta — MM 1992). Smásagan Sálmur birtist fyrst í tímariti í Moskvu
árið 1923 og var ekki endurprentuð þar fyrr en 1966.
Bobertson Davies fæddist árið 1913 í Ontario í Ranada. Hann stundaði
nám við Oxfordháskóla, fékk þar áhuga á leiklist og var kennari og leikari við
Old Vic í London þar til 1940, en þá fluttist hann aftur til Kanada. Þar starfaði
hann við blaðamennsku þar til hann varð prófessor í ensku við háskólann í
Toronto og síðan fyrsti rektor Massey College við þann háskóla til 1981. Sagan
Þegar kölski kemst heim um jólin er nokkurs konar tækifærissaga þaðan, því
Robertson Davies hafði þann sið að skemmta nemendum og kennurum skólans
með því að segja þeim eina draugasögu á hverri jólagleði og að eigin sögn var
ein ástæðan sú að svona nýjan skóla skorti hefðir. Enginn háskóli má drauglaus
vera og ekkert samkvæmi er svo gott að það verði ekki enn betra af svo sem
einni draugasögu. Þetta er því fyrst og fremst skemmtisaga og getur líkast til
varla talist dæmigerð fyrir skáldskap liöfundarins. Sögunum var safnað saman
í bókinni High Spirits árið 1982. - Robertson Davies er einn þekktasti
rithöfundur Kanada og meðal verka hans má nefna The Salterton Trilogy (Tem-
108
á- Jföay/Áiá - TÍMARJT l'ÝÐENDA 1994