Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 110

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Page 110
Seamus Heaney fæddist 1939 í Derry-héraði á Norður-írlandi og lauk námi frá Queens University í Belfast. Hann fór frá Norður-írlandi 1972 og hefur verið búsettur í Dyflinni síðan. Hann er almennt talinn meðal fremstu núlifandi ljóðskálda á enska tungu. Hann hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka og skrifað bókmenntagagnrýni. Ásamt Ted Hughes ritstýrði hann The Rattle Bag sem er sýnisbók samtímaljóðlistar. Á ári hverju dvelst hann vestanhafs og kennir við Hai'vard-háskóla. Árið 1990 var hann kjörinn heiðursprófessor í ljóðlist við Oxford-hákóla. Sören Kierkegaard (1813—1855) var danskur heimspekingur. Hann samdi ljölda bóka um heimspekileg efni með miklum skáldlegum tilþrifum. Efni bókanna spratt bæði af andlegu lífi í Danmörku um daga hans og af þýskri hughyggjuheimspeki, en ekki síst af einkareynslu hans og baráttu við sjálfan sig. Ilann er talinn faðir tilvistarstefnunnar. Gjentagelsen (Endur- tekningin) eftir Kierkegaard kom út hjá Helgafelli 1966 í þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Clarice Lispector fæddist 1925 í Úkraínu en foreldrar hennar fiuttust með hana nýfædda til Brasilíu og settust að í Becífe. Hún skrifaði fyrstu bók sína Perto do corágao selvagem (Við rætur hins villta hjarta) aðeins sautján ára gömul en síðan samdi hún fjölda verka og þegar hún lést 1977 hafði hún skipað sér á bekk með höfuðskáldum Brasilíu; einkum hlaut hún frægð fyrir liókina /1 magá no escuro (Eplið í myrkrinu). Smásögu eftir hana og frekai'i upplýsingar er að finna í Tímariti Máls og menningar 4. hefti 1981. Dezsö Monoslóy fæddist 1923 í Búdapest en flutti til Bratislava í Tékkóslóvakíu árið 1946 og hóf þar rithöfundarferil sinn. Hann sat í fangelsi um tíma á valdadögum stalínista en þegar „vorið í Prag“ gekk í garð 1968 var hann formaður ungversku deildarinnar í Bithöfundasambandi Tékkóslóvakíu. Hann komst undan innrásarliði Sovétinanna til Júgóslaviu og síðar til Austurríkis og hefur búið í Vín frá 1969. Verk hans eru mikil að vöxtum, Ijórtán ljóðabækur, sex skáldsögur, þrjár barnabækur en auk þess hefur hann þýtt um þrjá tugi bóka. Hann hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir bækur sínar en meðal þeirra þekktustu eru skáldsögurnar Tatowierte Rose, Der Tod eines Millionárs og Flucht aus Sodom. Sagan sem hér birtist er úr smásagnasafninu Diefiinf Jahreszeilen derLiebe (Fimm árstíðir ástarinnar) sem kom út í Vín 1989. Rudolf Nilsen fæddist í Osló 1901 og lést úr berklum árið 1929. Hann var verkamannssonur, tók stúdentspróf og stóð til að hann færi í guðfræðinám. Það varð þó ekki, þess í stað hóf hann störf hjá Norges kommunistblad, gekk 1923 í komniúnistafiokkinn sem þá var nýstofnaður og var virkur byltingarsinni til æviloka. Honum entist ekki aldur til að gefa út nema tvær ljóðabækur: Pá steengrunn 1925 og Pá gjensyn 1926. Verk sem hann lét eftir sig birtust í ritinu Hverdagen 1929. Þrátt fyrir pólitískl hvunndagsvafstur varðveitti Rudolf Nilsen næmi listamannsins og var framúrskarandi fulltrúi öreiganna á skáldabekk. fr// á J3ceý/-iá - TÍMARIT hÝÐENDA 1994 110
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.