Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 111

Jón á Bægisá - 01.11.1994, Side 111
Kostís Palamas, sem var uppi frá 1859-1943, nam lögfræði en starfaði fyrst sem blaðamaður og síðar sem háskólaritari í Aþenu (1897- 1927) og loks sem formaður vísindaakademíunnar aþensku frá 1930. Hann var sannkallaður jöfur í grísku menntalífi á fyrri hluta þessarar aldar og höfuðfulltrúi þeirrar miklu endurreisnar grískra bókmennta sem hófst með frelsisbaráttunni á nítjándu öld og tók einkum ijörkipp er alþýðumálið, ðímotíkí, ruddi sér til rúms sem ritmál í lok aldarinnar, ekki síst fyrir lilverknað bans. Palamas er óvenju víðfeðmur andi, fjölhæfur og fjölmenntaður, og lét að sér kveða jafnt sem sagnaskáld, ljóðskáld og gagnrýnandi, en einkenni hans eru öðru fremur innblásinn og eldlegur stíll. Af verkum hans má nefna fyrsta ljóðasafnið, Ti'agúðía tís patríðos mú (Ættjarðarsöngva 1886), og sögurnar O þanatos tú pallíkaríú (Dauði hetju 1891) og ÍJlogera tú vasílea (Flauta konungsins 1910), en meðfylgjandi sögur eru úr smásagnasafninu Ðugímata (Sögur) sem kom út í Aþenu árið 1929. Míkís Þeoðorakís fæddist árið 1925 á eynni Kliíos og stundaði tónlistar- nám í heimalandi sínu og síðar í Parísarborg. Framan af fékkst hann talsvert við kvikmyndatónlist og vann til heimsfrægðar fyrir tónlistina við kvikmyndina Grikkjann Zorbas (1964). Þar fyrir utan liggur eftir hann fjöldi verka af ýmsu tagi, allt frá einstökum sönglögum í alþýðlegum stíl til meiri háttar kórverka á borð viðAxíon estí (Verðugt er), óratóríu við ljóð eftir skáldið Oðýsseas Elýtís. Auk tónsmíða hefur Þeoðorakís haft afskipti af stjórnmálum og verið fangelsaður oftar en einu sinni af þeim sökum: fyrst árið 1943 vegna andstöðu við nasista og síðar á tímum borgarastríðsins gríska frá 1947-52 fyrir stuðning við kommúnista og aftur á tímum herforingjastjórnarinnar 1967-72. Hann var þingmaður fyrir vinstri menn um hríð, en hlaut síðar ráðherratign í hægri stjórn Mítsotakísar (1989-1993). Þýðendur og íslenskir höfundar Ástráður Eysteinsson (Þjóðráð. Formáli að ritgerð um Paradísarmissi bls. 10), fæddur 1957, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla íslands. Franz Gíslason {Einnáferð tilMaríulauga bls. 89), fæddur 1935, kennari í Reykjavík, hefur þýtt úr ensku og þýsku; einnig úr íslensku á þýsku í samvinnu við Wolfgang Schiffer og ileiri. Franzisca Gunnarsdóttir {ChangLao bls. 28), fædd 1942, fæst við ritstörf, hefur þýtt úr ensku og Norðurlandamálum. á JJSaepáiá - LESIÐ MILLI LÍNA 111
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.