Bændablaðið - 17.12.2015, Blaðsíða 80
80 Bændablaðið | Fimmtudagur 17. desember 2015
Við erum bæði héðan úr
Öræfum, Gunnar frá Litla-Hofi
og Halldóra frá Fagurhólsmýri.
Eftir að hafa dvalið í Reykjavík
nokkur ár fluttum við hingað
alkomin árið 1995 og komum
inn í búreksturinn með foreldr-
um Gunnars, þeim Sigurjóni
Þ. Gunnarssyni og Guðbjörgu
Magnúsdóttur. Þau reka ferða-
þjónustu á jörðinni í dag.
Árið 2000 fluttum við í okkar
eigið íbúðarhús. Gunnar var á sjó
samhliða búskapnum fyrstu árin
og Halldóra vann við ýmis störf
í sveitinni.
Býli: Litla-Hof.
Staðsett í sveit: Öræfum, Austur-
Skaftafellssýslu.
Ábúendur: Gunnar Sigurjónsson og
Halldóra Oddsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við eigum tvo syni sem heita
Oddur og Gissur. Sá eldri er 23
ára búfræðingur og sá yngri 15 ára
grunnskólanemi. Einnig er á bænum
smalahundurinn Mack.
Stærð jarðar? Nógu stór.
Gerð bús? Sauðfjárbú.
Fjöldi búfjár og tegundir? 570
kindur og 20 hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það fer eftir árstíðum. Í desember
eru sæðingar og tilhleypingar, yfir
veturinn, gegningar tvisvar á dag.
Snoðrúningur í mars, sauðburður
á vorin og ýmis önnur verk eins og
að bera á og flagvinna. Á sumrin
er heyskapur og girðingarvinna
eftir þörfum. Smalanir á haustin
og rúningur.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Öll störf eru skemmti-
leg ef vel liggur á manni.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu sniði og nú er.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda? Almennt mættu
bændur hafa meiri áhuga og taka
meiri þátt í félagsmálum.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni? Vonandi
vel, það fer eftir því hvernig tekst
til með gerð nýrra búvörusamninga.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Þau felast í því að finna réttu mark-
aðina sem gefa hæsta verðið.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Egg, mjólk og rabarbarasulta.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Grillaður lambaribbur
og ærlundir.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Frá þessu ári er það þegar
ærin Fliðra, sem var búin að ganga úti
í tvo vetur í Breiðamerkurfjalli ásamt
syni sínum, náðist á öðrum degi páska,
þá var búið að fara margar ferðir til að
reyna að handsama þau.
Líf og lyst
BÆRINN OKKAR
Litla-Hof
Tímarit Bændablaðsins vakti mikla lukku
í fyrravetur. Við ætlum að endurtaka
leikinn og gefa blaðið út 28. febrúar nk.
Tímaritið verður yfir 100 síður og prentað
á glanstímaritapappír í stærðinni A4.
Tímaritið tekur á helstu málefnum
landbúnaðarins og verða efnistökin fjölbreytt.
Tímarit Bændablaðsins er prentað í 8 þúsund
eintökum og dreift til allra áskrifenda, á öll
lögbýli landsins og í fyrirtæki sem tengjast
landbúnaðinum.
Útgáfa tímaritsins verður í kringum Búnaðarþing
sem sett verður í Hörpunni 28. febrúar.
Boðið er upp á hefðbundnar auglýsingar í
ritinu en í seinni hluta þess verður pláss fyrir
kynningarefni frá fyrirtækjum sem unnið er í
samvinnu við blaðamenn.
Verðskrá auglýsinga
Heilsíða: 160.000 kr. án vsk.
Hálfsíða: 95.000 kr. án vsk.
Opna: 230.000 kr. án vsk.
Lógó/styrktarlína (hámark 10 lógó
á síðu) = 25.000 kr. án vsk.
Verðskrá kynninga
Heilsíða: 130.000 kr. án vsk.
Hálfsíða: 85.000 kr. án vsk.
Opna: 210.000 kr. án vsk.
Nánari upplýsingar
veittar í síma 563-0300 og
netfangið augl@bondi.is
Tryggðu þér
auglýsingapláss
í tíma
Tímarit Bændablaðsins í sjónmáli
Hægt er að skoða Tímarit Bændablaðsins 2015 á bbl.is