Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Side 12
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 20108
sá kostnaður, sem tengist langvinnum
sjúk dómum, er gríðarlegur (Matthías Hall
d órs son, 2006). Samkvæmt Bangkok
yfirlýsingu WHO er heilsuefling „leið til að
auðvelda fólki að ná betri stjórn á heilsu
sinni og áhrifaþáttum heilbrigðis og bæta
þannig heilsu sína. Heilsuefling er kjarni
lýðheilsu og stuðlar að því að sporna
við smitsjúkdómum sem og öðrum
sjúkdómum og heilsufarsógnum“ (WHO,
2005). Forvarnir eru oft flokkaðar í þrjú
stig: fyrsta, annað og þriðja stig. Fyrsta
stigs forvarnir eru almennar og beinast að
fólki sem er ekki í áhættuhópi. Markmiðið
þar er að draga úr tíðni sjúkdóma og
heilbrigðisvandamála. Annars stigs
forvarnir beinast að fólki sem er í hættu á
að fá sjúkdóma eða lenda í slysum. Þriðja
stigs forvarnir snúa að fólki með ákveðin
heilsufarsvandamál og beinast að því að
hjálpa þessu fólki að ná heilsu á ný (Tetrick
og Quick, 2003). Fyrsta stigs forvarnir
eru taldar vera hagkvæmasta leiðin að
árangursríkri heilbrigðisþjónustu. Að sögn
Cohen og Chehimi (2007) væri hægt að
draga úr álaginu á heilbrigðiskerfið með
því að fjárfesta í forvörnum og koma
þannig í veg fyrir margvíslega sjúkdóma
og slys.
Heilsuefling á vinnustað
Heilsuefling á vinnustöðum felur í sér
lögboðna vinnuvernd og forvarnir á
vinnustöðum (sbr. lög nr. 46/1980) en enn
fremur er hugað að lífsstíl og tengslum
við einkalíf. Markmið vinnuverndar er að
koma í veg fyrir, með forvarnaraðgerðum,
að fólk bíði heilsufarslegt tjón vegna
vinnu sinnar (Green og Kreuter, 2005), en
markmið heilsueflingar á vinnustöðum er
að auka heilbrigði og vellíðan starfsfólks
og koma í veg fyrir andlega, líkamlega
og félagslega vanlíðan vegna ýmissa
áhættuþátta í vinnuumhverfinu og þátta
er tengjast lífsstíl einstaklinga. Áhættu
mat og greining á þörfum er stór
hluti af vinnuvernd og heilsueflingu á
vinnustöðum. Heilsuefling á vinnustöðum
er samstarfsverkefni sem margir aðilar
þurfa að taka þátt í til að árangur náist.
Segja má að heilsuefling á vinnustað
sé sameiginlegt átak vinnuveitenda,
starfsmanna og þjóðfélagsins alls sem
miðar að því að bæta heilsu og líðan
vinnandi fólks. Þessu markmiði verður
náð með því að bæta vinnuskipulag og
vinnuumhverfi, stuðla að virkri þátttöku
og ýta undir þroska einstaklingsins
(Lýðheilsustöð og Vinnueftirlitið, 2008).
Æ meiri áhersla hefur verið lögð á
heilsueflingu á vinnustöðum síðustu árin
(Green og Kreuter, 2005) og er talið að
sú þróun haldi áfram (O’Donnell, 2002).
Margar og mismunandi ástæður geta
verið fyrir því að atvinnurekendur taki upp
heilsueflingu. Hvað gert er og hvernig
getur ráðist af stærð fyrirtækja, fjárráðum
og þekkingu eða þekkingarleysi.
Heilsuefling í litlum og
meðalstórum fyrirtækjum
Í Evrópusambandinu er skilgreiningin á
litlum og meðalstórum fyrirtækjum sú
að í litlum fyrirtækjum eru færri en 50
starfsmenn en í meðalstórum fyrirtækjum
eru 50249 starfsmenn. Á Íslandi er
notuð skilgreining Evrópusambandsins.
Næstum öll fyrirtæki á Íslandi tilheyra
þessum hópum (Hagstofa Íslands, 2007).
Þörfin fyrir heilsueflingu og slysavarnir er
meiri í litlum og meðalstórum fyrirtækjum
en í stórum fyrirtækjum. Samkvæmt
rannsókn Shain og Kramer (2004) geta
ástæðurnar verið þær að stórt hlutfall
starfsfólks í litlum fyrirtækjum getur verið
í hættu, bæði vegna óheilsusamlegs
líkamlegs og andlegs vinnuumhverfis.
Vinnustellingar og síendurteknar
hreyfingar geta haft mikil áhrif, svo og
andlegt álag ef samkeppni er mikil á
vinnustaðnum. Hættan á heilsutjóni er
einnig meiri í fyrirtækjum þar sem gerðar
eru miklar kröfur og starfsmennirnir hafa
litla stjórn eða yfirráð (Campbell o.fl.,
2002). Samkvæmt upplýsingum frá
the European Agency for Safety and
Health at Work (2001) eiga starfsmenn
í litlum og meðalstórum fyrirtækjum
frekar á hættu að lenda í vinnuslysum
en starfsmenn í stærri fyrirtækjum. Þrátt
fyrir þessar staðreyndir og þó svo að
meirihluti allra fyrirtækja bæði hér á landi
og annars staðar í Evrópu séu lítil og
meðalstór, er mun minni áhersla lögð á
heilsueflingu og forvarnir þar en í stórum
fyrirtækjum. Mikilvægt er því að reyna að
ná til lítilla og meðalstórra fyrirtækja til að
fækka vinnuslysum, efla heilsu og bæta
almenna líðan starfsmanna.
Á litlum vinnustöðum geta leynst ýmsar hættur. Í heilsueflingu felst einnig að greina þær.