Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Side 18
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201014
Júlíana Sigurveig Guðjónsdóttir, Þuríður Björnsdóttir, Ingibjörg Steinunn Sigurðardóttir og Harpa Karlsdóttir, sigurveig@soltun.is
RAI-MATSTÆKIÐ: ÚTIVERA EYKUR
VELLÍÐAN ÍBÚA Á HJÚKRUNARHEIMILI
Gæðavísar eru öflug tæki til þess að fylgjast með árangri meðferðar. Hér er lýst
notkun þeirra við mat á gagnsemi útivistar fyrir íbúa á Sóltúni.
Markmið þessarar greinar er að skýra
frá hvernig markviss útivera íbúa, sem
þjást af heilabilun, á hjúkrunarheimili
skilaði sér í bættri líðan þeirra samkvæmt
RAImatstækinu. Skipulagsbreyting var
gerð haustið 2006. Bornar voru saman
mælingar árin 20052008 á einum
gæðavísi, það er hve algengt þunglyndi
er með og án meðferðar, á einni deild á
Sóltúni.
RAImatstækið (Resident Assessment
Instrument) er viðamikið mat og greining
sem gefur tölulegar niðurstöður bæði um
hjúkrunarþörf og um gæði þjónustunnar.
Eins og kunnugt er er RAImat gert á
öllum íbúum hjúkrunarheimila á landinu.
Þrjátíu gæðavísar hafa verið búnir til fyrir
RAImatstækið. Gæðavísar eru tölulegar
upplýsingar, gjarnan í formi hlutfalls,
sem gefa vísbendingar um gæði eða
gagnsemi skilgreindra verkferla. Þeir gefa
starfsfólki og stjórnendum vísbendingar
um það sem vel er gert og það sem betur
má fara (Zimmerman o.fl., 1995).
Niðurstöður RAImatstækisins á algengi
þunglyndis gáfu vísbendingar um að
vellíðan íbúa ykist með reglulegri útiveru
og að þunglyndiseinkenni hjá þeim
minnkuðu. Niðurstöður varpa ljósi á
góð áhrif útiveru á líðan þegar útiveran
er vel skipulögð og fer fram reglulega.
Verkefnið er því gott innlegg í umræðu
um mikilvægi útvistar á vellíðan aldraðra
á hjúkrunarheimilum.
Breyting á skipulagi
Haustið 2006 skipulögðu starfsmenn
deildarinnar reglulegar útiferðir með
íbúum, svo sem gönguferðir í kringum