Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2010, Side 42
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 86. árg. 201038
Elsa B. Friðfinnsdóttir, elsa@hjukrun.is
ÁHRIF EFNAHAGSKREPPUNNAR Á ÍSLANDI Á
HJÚKRUN OG HJÚKRUNARFRÆÐINGA
Í byrjun þessa árs birtist grein
í vefriti mannauðsdeildar
Alþjóða samtaka hjúkrunar fræð
inga, Inter national Centre for
Human Resources in Nursing
(ICHRN), um áhrif efnahags
kreppu nnar á Íslandi á hjúkrun
og hjúkrunarfræðinga. Greinin,
sem skrifuð var af formanni og
alþjóðafulltrúa Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, er fyrsta
greinin í ritröð um áhrif hinnar
alþjóðlegu efnahagskreppu á
hjúkrun og hjúkrunarfræðinga.
Greinin var birt á ensku, frönsku
og spænsku og hana má finna á
vefsíðu ICHRN.
Skýrsluna um áhrif efnahagskreppunar
á hjúkrun á Íslandi má sækja á pdf
sniði og er hún 24 bls.
ICHRN hefur að markmiði að bæta gæði heilbrigðisþjónustunnar, meðal
annars með framþróun í hjúkrun. Til að ná því markmiði leitast deildin við að
afla og miðla upplýsingum um mannafla í hjúkrun og skipulag hjúkrunar um
heiminn. Auk þess skoðar hún heilbrigðiskerfi og mismunandi árangur þeirra.
ICHRN telur sammerkt með heilbrigðiskerfum þjóða heimsins að ójafnvægi
ríki hvað mannafla í hjúkrun varðar. Víðast sé skortur á hjúkrunarfræðingum
til starfa og tilflutningur á mannafla frá þróunarlöndum til þróaðri ríkja. Sá
tilflutningur eykur enn á ójafnvægið. ICHRN heldur því fram að ástæðan sé
meðal annars sú að stjórnvöld í hverju landi hafi vanrækt að halda saman
upplýsingum um þarfir og framboð á mannafla í hjúkrun, stýring mannaflans
hafi ekki verið næg og stefnumótun hafi skort. Þannig hafi ekki verið
brugðist við fyrirséðum skorti á hjúkrunar fræðingum víðast um heiminn og
ekki brugðist við óæskilegum tilflutningi mannaflans og það leiði aftur til
áðurnefnds ójafnvægis.
Ástæða þess að fyrst var leitað til FÍH um ritun greinar um áhrif efnahagskreppunnar
á hjúkrun og hjúkrunarfræðinga var án efa það mat að kreppan hefði skollið hvað
harðast á Íslendingum. Hér á eftir verður birt stutt brot af því sem fram kemur í
greininni. Að öðru leyti vísast til vefsvæðis ICHRN. Rétt er að ítreka að greinin var
skrifuð og send til birtingar í júlí 2009.