Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2013, Page 15
Tímarit hjúkrunarfræðinga – 2. tbl. 89. árg. 2013 11
Orlofssjóður
Rétt til aðildar að sjóðnum eiga allir þeir hjúkrunarfræðingar
sem starfa hjá vinnuveitendum sem gert hafa kjarasamning
við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga um greiðslur í orlofssjóð
FÍH fyrir viðkomandi hjúkrunarfræðinga. Vinnuveitandi greiðir
sérstakt gjald í orlofssjóð FÍH. Gjald þetta nemur 0,25% af
heildarlaunum félagsmanna. Árgjaldið jafngildir ávinnslu 12
punkta. Sjóðsfélagar í fæðingarorlofi njóta óskertra réttinda
ef þeir greiða félagsgjöld af greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.
Sjóðsfélagar í fæðingarorlofi ávinna sér þó ekki punkta.
Orlofssjóður hefur lagt metnað í að bjóða fjölbreytta valkosti
fyrir félagsmenn FÍH og getur hver félagsmaður nýtt sér
fleiri enn einn valkost eftir punktastöðu hvers og eins. Allir
valkostirnir eru niðurgreiddir af sjóðnum.
Hugsanlega hafa ekki allir kynnt sér það sem í boði er hjá
orlofssjóðnum. Þar eru meðal annars:
Orlofshús og orlofsíbúðir
Gjafakort hjá Útivist og Ferðafélagi íslands
Gjafakort hjá Icelandair og WOW air
Kort í Hvalfjarðargöng
Veiðikortið
Golfkortið
Útilegukortið
Hótelmiðar
Ef einhver vafaatriði vakna varðandi orlofsréttindi eru félags
menn hvattir til þess að hafa samband við trúnaðarmanninn
sinn eða að hafa beint samband við félagið. Hægt er að senda
fyrirspurnir á hjukrun@hjukrun.is og á cissy@hjukrun.is.
Cecilie B.H. Björgvinsdóttir er sviðstjóri kjara og réttindasviðs
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Lágmarksorlof:
Yngri en 30 ára 10,17%
30-37 ára 11,59%
38 ára og eldri 13,04%
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
Arnór L. Pálsson
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Jón Bjarnason
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elíasson
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
Önnumst alla þætti útfararinnar
Þegar andlát ber að höndum
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST