Þjóðmál - 01.03.2010, Side 31

Þjóðmál - 01.03.2010, Side 31
 Þjóðmál VOR 2010 29 auka landsframleiðsluna um vel yfir 10% á tiltölulega skömmum tíma . Við þessar aðstæður í efnahagslífinu er hið sígilda og almennt viðurkennda efnahags- úrræði, allar götur frá dögum Keynes (1936), að lækka skatta og/eða reka ríkis- sjóð með halla . Skattalækkun ýtir annars vegar undir eftirspurn í hagkerfinu og hins veg ar framtak, og frumkvæði í atvinnulíf- inu . Þetta er nákvæmlega það sem helst skortir í íslensku efnahagsumhverfi í dag . Ríkisstjórnin hefur hins vegar kosið að fara þveröfuga leið . Í stað þess að lækka skatta, og ýta þannig undir eftirspurn og framtak, hefur hún valið að hækka skatta . Nánast allir hugsanlegir skattar hafa verið hækkaðir . Auk þess hefur hún fundið upp nýja sérskatta . Jafnvel launskatturinn, þ .e . tryggingargjaldið svokallaða, sem beinlínis hækkar launakostnað fyrirtækja og dregur því beint úr atvinnu, hefur verið hækkaður . Skattahækkanir hafa a .m .k . ferns konar neikvæð áhrif á efnahag og hagvöxt: • Þær rýra ráðstöfunarfé heimila og fyrir- tækja og draga þar með úr eftirspurn þeirra í hagkerfinu . • Þær fæla fólk frá vinnu og fyrirtæki frá framtaki, fjárfestingum og nýsköpun . Jafn- vel þótt einungis skattar á launþega væru hækkaðir myndu þeir samt sem áður bitna á fyrirtækjunum og hagnaðarmöguleikum þeirra því þau verða að greiða skatta laun- þeganna með einum og öðrum hætti . • Þær draga úr lífskjörum þeirra sem bjarg álna eru á Íslandi og herða því enn á brott flutningi frá landinu . • Þær auka svartsýni og vantrú manna á að í landinu verði samkeppnishæft rekstrar- umhverfi í framtíðinni og draga þar með enn úr vilja til fjárfestinga . Á móti þessum skaðvænlegu áhrifum gæti komið bættur efnahagur hins opin bera . Það er hins vegar að öllum líkindum skamm- góður vermir . Með því að skattahækkanir verða nánast örugglega til að minnka verga landsframleiðslu, miðað við það sem að öðrum kosti hefði orðið, munu þær leiða til minni skatttekna í framtíðinni . Í þeirri erfiðu kreppu sem íslenska hagkerfið glímir nú við er sú framtíð sennilega innan eins eða tveggja ára . Aukin skattheimta er nú m .ö .o . líkleg til að rýra tekjumöguleika hins opinbera í framtíðinni . Skattar hafa víðtæk og fjölbreytt áhrif á hagkerfið og því talsvert flókið að gera sæmilega tæmandi grein fyrir þeim áhrifum . Til þess að freista þess að veita einhverja hug mynd um þessi áhrif hef ég reiknað áhrif skatta á einn þátt í hagvaxtarferlinu, þ .e . á fjárfestingar fyrirtækja og heimila . Rétt er að undirstrika að hér er einvörðungu verið að skoða einn þátt af nokkuð mörgum neikvæðum áhrifum skatta á hagvöxt sem nefnd voru hér að framan . Reikningarnir eru byggðir á fremur einföldu hagvaxtarlíkani af hefðbundinni gerð (Romer 1996) . Vöxtur lands fram leiðslu er í aðalatriðum talinn ráð ast af tækniframförum og fjárfestingum . Gert er ráð fyrir föstum tækniframförum 1% á ári . Fjárfestingar (í fjármunum, mann- auði, rannsóknum og þróun) eru taldar ráðast af ráðstöfunarfé heimila og fyrirtækja . Ráð stöf unar féð ákvarðast á hinn bóginn af lands fram leiðslu að frádregnum sköttum og af borg unum lána til útlanda . Það er m .ö .o . ekki gert ráð fyrir að ríkið noti skatttekjur sínar til að fjárfesta í atvinnustarfsemi, enda hefur ekki verið svo á liðnum árum og er enn ólíklegra nú . Að lokum hafa í þessum reikningum þekktar og fyrirsjáanlegar að- stæður í hagkerfinu viss (en takmörkuð) áhrif á þróun landsframleiðslu á árunum 2007–2011 . Skoðuð eru þrjú dæmi um skatta: (1) Óbreyttir skattar miðað við 2008; (2) hækkun skatta um 10%; og (3) hækkun skatta um 20% . Ekki liggur fyrir hvað

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.