Þjóðmál - 01.03.2010, Blaðsíða 86
84 Þjóðmál VOR 2010
Ástæðan fyrir því að ég fór að þýða þessa bók var sú að ég ætlaði að þreifa
fyrir mér í þýðingarstarfi . Fékk mér forritið
WordFast og vantaði að prufukeyra það . Til
þess þarf maður að þýða texta til að sjá hvort
gagnagrunnurinn færi að hjálpa til . Ég var
búinn að eiga þessa bók nokkuð lengi án
þess að hafa opnað hana fyrr en þetta sama
ár . Ég vissi að þetta væri merkileg bók, bæði
bókmenntalega og svo flugtæknilega, en
hvort tveggja höfðar til mín .
Ég var fremur hvattur áfram af fólki
sem þekkir til bókamarkaðarins sem sagði að
það væri alltaf viss lesendahópur í kringum
flug bækur þannig að bókin myndi eitthvað
seljast af þeim orsökum til að byrja með,
ef ég kláraði verkið . Svo ég kláraði verkið á
tveimur mánuðum . Forritið hjálpaði mér
lítið þó að bókin væri komin í grunninn .
Lewis er nefnilega meistari orðanna og
skrifar aldrei sömu setninguna aftur, nema
þá stuttar upphrópanir . Þar af leiðandi hjálp-
aði gagnagrunnurinn lítið til . En forrit eins
og WordFast eða SDLTrados, sem vinnur
svipað, eru hinsvegar afskap lega skipulögð
og nauðsynleg við þýðingar störf þar sem
þau halda yfirsýn yfir allt verkið og tryggja
að ekkert gleymist . Eftir því sem maður
þýðir meira eru meiri líkur á að setningar
fari að koma oftar fyrir og þá fara þau að
létta verkið, eða þannig er kenningin .
Sjálfsagt virkar svona forrit betur því
einfald ari textinn er, eins og til dæmis í
þessum klassíska glæpareyfara sem þjóðin
les . Ég hygg að slíkar þýðingar gengju mun
hraðar fyrir sig en texti eftir svona kall eins
og Lewis . En mörg af orðunum sem hann
notar eru ekki til í enskum orðabókum og
maður verður að fara aftur í aldir til að finna
merkinguna .
Þetta átti nú fyrst bara að verða prufu-keyrsla en svo náði Lewis skjótt
tökum á mér þannig að það var eiginlega
Halldór Jónsson
Cecil Lewis og
Sagittaríus rísandi
Ein af mörgum góðum bókum sem drukknuðu í jólabókaflóðinu
var íslensk þýðing á einu af meistaraverkum flugbókmenntanna,
Sagittarius Rising eftir Englendinginn Cecil Lewis .
Bókin er áhrifarík lýsing á flughernaði í heimsstyrjöldinni fyrri .
Þýðandi bókarinnar er áhugaflugmaður til margra ára, Halldór Jónsson
verkfræðingur . Þjóðmál báðu hann að segja stuttlega frá bókinni
og nýstárlegri aðferð hans við fyrstu gerð þýðingarinnar .