Þjóðmál - 01.06.2011, Qupperneq 24
22 Þjóðmál SUmAR 2011
Páll Vilhjálmsson
Baugur, Davíð og íslenskir
vinstrimenn 2002–2008
Í tilefni af útkomu bókarinnar Rosabaugur
yfir Íslandi eftir Björn Bjarnason
Lýðveldiskynslóð vinstrimanna á Íslandi ólst upp í skugga Sjálfstæðis
flokks sem bar höfuð og herðar yfir aðra
stjórn málaflokka . Óskadraumur vinstri
manna, um sterkan flokk í ætt við verka
lýðs flokka á Norðurlöndum, rættist aldrei .
Einhlít skýring er ekki til á sérþróun vinstri
flokka hérlendis . Einn skýringar þáttur er að
Sjálfstæðisflokkurinn undir formerkjunum
„stétt með stétt“ hélt umtalsverðum styrk
leika meðal launþega . Önnur veigamikil
skýring er að öll lýðveldisárin voru flokk ar
vinstrimanna, Alþýðuflokkur og Alþýðu
bandalag, með andstæðar skoðanir á utan
ríkismálum, aðild Íslands að NATO og
herstöðvarsamningi við Bandaríkin .
Vinstrimenn fengu einkum með tvenn um
hætti aðild að ríkisstjórnum . Annars vegar
í skjóli Sjálfstæðisflokksins, t .d . Við reisn
ar stjórn Alþýðuflokks og Sjálf stæðis flokks
1959 til 1971, eða í brot hættum þriggja
flokka stjórnum með Fram sóknar flokki,
t .d . 1978–1979 og 1988–1991 þar sem
Borg ara flokkurinn kom einnig við sögu .
Vinstriflokkarnir voru að þrotum komn ir
undir aldamótin, bæði í pólitískum skiln
ingi og skipulagslegum . Forysta vinstri
flokk anna sá ekki fram á að komast til valda
á eigin forsendum og sundurþykkja milli
flokk anna rénaði ekki . Á tíunda áratug
síð ustu aldar lögðu flokkarnir af útgáfur
sínar, Alþýðublaðið og Þjóðviljann . Vinstri
flokkarnir gerðu samkomulag við feðg ana
Svein R . Eyjólfsson og Eyjólf Sveinsson um
að útgáfa á þeirra vegum þjónustaði ver aldar
sýn vinstri manna . Feðgarnir eru sjálf stæðis
menn og Eyjólfur var um tíma að stoðar
maður Davíðs Oddssonar forsætisráðherra .
Um aldamótin stokkuðu vinstrimenn
upp sinn hluta flokkakerfisins . Markmiðið
var að breyta valdahlutföllum í samfélaginu .
Al þýðu flokkur og Alþýðubandalag, flokkar
með langa sögu og hefðir, og Kvennalistinn,
sem stofnaður var 1983, runnu saman í eitt
fram boð 1999 undir merkjum Samfylking ar .
Vinstri menn voru þó ekki samstíga fremur
en fyrri daginn . Fyrrum varaformaður Al
þýðu bandalagsins, Steingrímur J . Sigfússon,
stofn aði ásamt Ögmundi Jónas syni og fleiri
Vinstri hreyfinguna – grænt fram boð .