Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 55
Þjóðmál SUmAR 2011 53
Gunn arssonar í Morgunblaðinu segir: „Eru
ein hver rök fyrir því, að skattgreiðendur —
í hvaða landi sem er — taki á sig afleiðingar
rangra ákvarðana sem stjórnendur einka
fyrir tækja hafa tekið?“
Ég spyr á móti: Eru einhver rök fyrir
því að skattgreiðendur — í okkar landi —
greiði aftur og enn aftur fyrir mistök stjórn
málamanna í opinberum fyrir tækjum? Ég
segi nei . Valdhafar eiga að skila fyrir tækj
unum til almennings .
II . umsjóNarráð heNta vel margs koNar
rekstri
Þótt kosningar til stjórnlagaþings hafi verið ógiltar af Hæstarétti Íslands, sum
um til mikilla vonbrigða, er spurning hvort
ekki megi af þeim læra fleiri og allt aðra
hluti en til var ætlast?
Kosningar til stjórnlagaþingsins eru gott
dæmi þar sem stór hópur kjósenda, allir
kosningabærir Íslendingar, velja fáa menn,
25, úr stórum hópi frambjóðenda, 522 .
Þetta hefur verið vandamál í stórum hluta
félögum erlendis, þar sem hluthafar skipta
tugum og jafnvel hundruðum þúsunda og
erfitt að tryggja áhrif þeirra .
Þá hefur verið brugðið á það ráð að kjósa
svokallað „Aufsichtsrat“, sem ég hefi kosið
að þýða „Umsjónarráð“ . Hluthafar kjósa þá
ákveðinn fjölda manna, mismunandi marga
eftir stærð félagsins, í umsjónarráð .
Þetta umsjónarráð hefur fyrst og fremst
það hlutverk að kjósa eða ráða stjórn
félags ins, sem aftur ræður forstjóra/fram
kvæmdastjóra þess . Auk þess gegnir um
sjónarráðið eftirlitshlutverki en stjórnin
stjórnar hins vegar félaginu á eigin ábyrgð
undir eftirliti umsjónarráðs, en þarf ekki að
hlíta fyrirmælum þess .
Enginn getur setið samtímis í umsjónar
ráði og stjórn félagsins .
Þetta gæti verið góð leið til að veita stór um
hópi, t .d . neytenda og eigenda, meiri að gang
að stjórnum þjónustufyrirtækja og þjón
ustustofnana, sem ekki virðist vanþörf á .
Tökum aftur dæmi af Orkuveitu Reykja
víkur . Þá gætu Reykvíkingar og aðrir not
end ur þjónustu OR kosið vissan fjölda
í um sjónar ráð t .d . 9–25 . Umsjónarráð
myndi svo ráða helming stjórnarmanna en
borgar stjórn Reykjavíkur hinn helminginn .
Ráðningin færi fram á algjörlega opinn og
hreinskiptinn hátt . Störfin væru auglýst,
fagnefnd færi yfir umsóknirnar og notast
væri við sérfræðinga í mannaráðningum ef
þurfa þætti .
Æskilegt væri að borgarstjórn stæði á
sama hátt að ráðningu eða tilnefningu
stjórnarmanna sinna í Orkuveitunni .
Sama hátt mætti hafa á við stjórnun líf
eyris sjóða . Sjóðsfélagar og lífeyrisþegar kysu
um sjónarráð sem tilnefndu helming stjórn
ar innar á móti þeim, sem nú skipa stjórnir
líf eyrissjóðanna .
Einnig kemur til greina að endurskipu
leggja stjórn vegamála á þennan hátt .
Vegagerðin er fyrirtæki eða stofnun,
sem fer með geysimikið fjármagn þar sem
vega kerfi landsins er . Sama má segja um
ríkis fyrirtæki eins og Landsbanka Íslands
o .fl .
Ég legg áherslu á að æðstu opinberir að
il ar haldi áfram að tilnefna menn í stjórn
þjónustufyrirtækja til þess að rjúfa ekki
tengslin við hið opinbera, sem á að gæta
al mennra hagsmuna og þjón ustu hlut verks
ins . Gott er að stjórnarmenn komi úr ólík
um áttum til að víkka sjónarmið og auka
öryggi . Eins mættu launþegar eiga trygga
aðkomu að umsjónarráði .