Þjóðmál - 01.12.2011, Page 9
8 Þjóðmál VETUR 2011
með því . Spurning er hvort hún hafi verið
of varkár þegar til þess er litið að aðeins
75 landsfundarfulltrúar þurftu að kjósa á
annan veg til að hún bæri sigur úr býtum .
Af hálfu Bjarna Benediktssonar og stuðn -
ingsmanna hans var lögð áhersla á að
hann hefði ekki fengið tækifæri til að sýna
raunverulega forystuhæfileika sína í þágu
þjóðarinnar þar sem hann hefði orðið að
ein beita kröftum sínum að því að endur reisa
sjálfan flokkinn eftir bankahrunið . Raun ar
má segja að hver og einn geti verið stoltur af
því að hafa náð þeim árangri með flokk sinn
sem Bjarni hefur náð til þessa þótt færa megi
fyrir því rök að fylgi Sjálfstæðisflokksins ætti
að vera enn meira miðað við hina hörmu-
legu ríkisstjórn sem situr við völd í landinu .
Meirihluti landsfundarfulltrúa hafði trú á
því að Bjarna tækist að ná enn lengra og
veitti honum traust og umboð til að sýna
það .
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú stuðnings
fleiri kjósenda en stjórnarflokkarnir sam-
tals, það er 38% á móti 35,5% stuðningi
við Samfylkinguna og VG samtals . Vandinn
fyrir sjálfstæðismenn á þingi er að þeir hafa
ekki skapað sér nægilega skýra vígstöðu
gagnvart þeim árásum og svívirðingum sem
á þeim dynja með vísan til bankahrunsins
og aðdraganda þess . Lófatakið sem Davíð
Oddsson og Geir H . Haarde fengu á
landsfundinum eftir ræður sínar sannaði
enn að fundarmenn láta stöðugar árásir
á Davíð og landsdómsmálið á hendur
Geir ekki varpa skugga á hollustu sína við
flokkinn og þjóðkunna málsvara hans .
Þrjú ár eru liðin frá bankahruni . Mörg
öflug vopn hafa verið lögð í hendur kjörinna
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem auðvelt
er að beita til að slá á róg og illmælgi um
flokkinn . Þessum vopnum verður þó ekki
beitt af nauðsynlegum þunga af hverjum
sem er . Sumir geta alls ekki gripið til þeirra
af því að þeir eru ekki trúverðugir í augum
kjósenda . Aðrir vilja ekki taka slaginn af því
að þeir bera sjálfir Akkilesar-hæl .
Sjálfstæðisstefnan stendur þetta allt af sér .
Forystumenn flokksins lágu ekki heldur
flatir fyrir auðmönnunum sem áttu mestan
þátt í að bankarnir reistu sér hurðarás um
öxl .
Sjálfstæðisflokkurinn þarf ekki að sýna
neina minnimáttar- eða sektarkennd vegna
bankahrunsins . Þegar hrunið varð gripu
forystumenn hans til réttra ráða . Flokk-
urinn verður hins vegar að huga að því við
ákvörðun við val á frambjóðendum í hans
nafni að þar séu ekki einstaklingar á ferð
sem liggja vel við höggi og veikja trú manna
til flokksins .
II .
Nái stjórnarandstaða á Íslandi sér ekki á strik við núverandi stjórnarhætti
ríkisstjórnarinnar á hún ekkert erindi . Enn
og aftur snúast umræður vegna ríkisstjórn-
innar um hverjir sitja í ráðherrastólum .
Tignarsæti skipta meira máli en allt annað
hjá vinstri velferðarstjórninni .
Í september 2010 var síðast skipt um ráð-
herra . Tveir utanþings-ráðherrar, Ragna
Árnadóttir og Gylfi Magnússon, hurfu úr
ríkisstjórninni . Jafnframt var skipt um tvo
ráðherra: Álfheiði Ingadóttur og Kristjáni
L . Möller var ýtt til hliðar . Ögmundur
Jónasson og Guðbjartur Hannesson komu
í stað þessara fjögurra .
Nú er enn á döfinni að fækka í ríkis-
stjórninni . Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra sagði Jóni Bjarnasyni, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra, stríð á
hendur í fréttatíma RÚV sunnudaginn
27 . nóvember, tveimur dögum eftir að
hún hafði gagnrýnt Ögmund Jónasson
innanríkisráðherra fyrir að neita Huang
Nubo, kínverskum fjárfesti, um heimild til