Þjóðmál - 01.12.2011, Side 15

Þjóðmál - 01.12.2011, Side 15
14 Þjóðmál VETUR 2011 fínt og elegant“ .5 Jóni og Ingibjörgu var líka stundum boðið í jólaboð . Þau hafa þó varla verið eins íburðarmikil og veislan sem Þorlákur sat í London . Hátíðirnar hafa sannar lega verið annasamur gleðitími .6 Jólaundirbúningurinn og veisluhöldin hafa leikið í höndum Ingibjargar . Eiríkur Magnússon segir í fyrrnefndu bréfi til Jóns: Eg vona að þessi seðill komi heill á húfi til yðar fyrir jól og finni yðr heilan heilsu og alla yðar alveg viðbúna að njóta gleðilegra jóla og seðjast með lyst góðri hnausþykkum hrísgraut og eldrauðu hángikjöti . Eg vildi konan yðar gæti stúngið upp í túlann á mér á aðfángadagskvöldið laglegum bringukollsbita . En hennar armr er stuttr (þó viljinn sé lángr) en þýzka hafið er breitt . — Eg óska ykkur öllum gleðilegra jóla og góðs nýars og þakka ástsamlega fyrir hið liðna .7 Hátíðarlífið í Höfn var ekki það eina sem komst að í huga hjónanna á þessum árstíma . Bréfaskrif og lestur bréfa að heiman voru einnig snar þáttur í hátíðahaldinu .8 Hjónin fengu nýárs- og jólaóskir frá vinum, ættingjum og kunningjum og hugur þeirra hefur líklega oft verið að hálfu heima á Íslandi yfir hátíðirnar .9 Bréf frá Ólafi, Margréti, Gísla Hjálmarssyni og fleiri ættingjum og vinum hafa líklega verið tekin upp í mikilli eftirvæntingu og lesin aftur og aftur upphátt fyrir alla heimilismeðlimi ef því var að skipta . Góðar fréttir af ástvinum á Íslandi voru ómetanlegar á jólum . Það var á sama hátt mikilvægt fyrir hjónin að skrifa bréf heim til að óska gleðilegra jóla . Eitt af fyrstu verkum nýja ársins var síðan að skrifa nýárskveðjur .10 Harðfiskurinn var ekki á boðstólum yfir hátíðirnar, heldur virðist hafa verið danskt yfirbragð á jólahaldinu þó þar hafi einnig verið íslenskt hangikjöt — og bringukollur . Í áramótaveislunum var dönsk jólagæs og yfir borðum var drukkið sérrý, rauðvín og púrtvín .11 Það gefur hugmynd um matseldina og undirbúning Ingibjargar að lesa nokkurs konar innkaupaseðil hennar en efst á honum stendur „til Jolanna“ . Þetta árið (á blaðið hefur ekki verið skráð dagsetning) keypti húsmóðirin við Austurvegg gæs, vín, kerti, köku, epli, hrísgrjón, mjólk og rjóma . Þá stendur skráð að fyrir hafi hún keypt fleira inn til jólahaldsins fyrir 7 ríkisdali .12 Á einum miðasneplinum frá Ingibjörgu kemur fram að 29 . desember keypti hún gæs, héra, köku, rjóma, hveiti, hrísgrjón og vín . Þetta er hráefni í góða veislu með dönskum jólagraut .13 Jóla- og áramótaveislur Ingibjargar og Jóns voru margrómaðar .14 Tryggvi Gunnarsson lýsti í dagbók sinni einni slíkri veislu á gamlárs kvöld árið 1863 . Þar var fjórréttað og eftir matinn var spilað fram eftir . Hjónin hafa viljað sýna mikla gestrisni og fengu hestakerrur að Austurvegg, greiddu uppsett gjald og síðan stigu gestirnir í vagninn að sögn Tryggva og héldu heim á leið .15 Þorvaldur Thoroddsen lýsti jólaboðunum hjá Jóni og Ingibjörgu svo: „Um jólin hjelt Jón Sigurðs son vanalega ýmsum kunningjum sínum jólaboð, og var eg í þeim tvisvar sinnum . Var þá haft með mat ungarskt vín frá Bauer vínsala í Tordenskjoldsgade, sem landar skiftu töluvert við, þeir sem betur voru fjáðir .“16 Ingibjörg Jensdóttir, sem dvaldi hjá frændfólki sínu einn vetur, sagði að „á gamlárskvöld 1877“ hafi Jón gefið „öllum gestunum almanak fyrir árið 1878, öll í bandi, sitt með hverjum lit . Hann hélt almanökunum í höndum sér eins og spilum og lét hvern gest draga sitt almanak .“17 Það hefur því greinilega verið mikill bragur yfir veislunum . Rétt fyrir jól sendu hjónin út boðskort í hátíðarveislurnar . Vinir þeirra hjóna og kunningjar fengu formlegt boð eins og sjá má í skjalasöfnum . Sumir þurftu að afþakka gott boð en aðrir þiggja það með þökkum .18 Á Þorláksmessu árið 1875 sendir Sigurð ur L . Jónasson, góðvinur þeirra, þeim orðsendingu

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.