Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 19
18 Þjóðmál VETUR 2011
sérstaklega Vinstri græn, sjái ekki kostina
sem kísilframleiðsla á Íslandi hefur út frá um-
hverfissjónarmiði .
Kolefnisgjaldið, sem nú hefur verið fallið
frá, stefndi ekki aðeins áformum um ný
fyrirtæki í hættu heldur var ljóst að Elkem
Ísland á Grundartanga, hefði lokað . Á vef
Verka lýðsfélags Akraness var því haldið
fram að um dauðans alvöru sé að ræða því
í húfi sé lífsafkoma 300 starfsmanna og
um eitt þúsund afleidd störf sem tengjast
járnblendiverksmiðjunni . Þá segir einnig:
Það er ekki að ástæðulausu að forstjóri fyrir-
tækisins [Elkem Ísland] skuli taka svona sterkt
til orða þegar hann talar um að rekstur fyrir-
tækisins sé í algjöru uppnámi vegna þessarar
skattpíningar ríkisstjórnarinnar . Erlendir fjár-
festar hafa ekki nokkurn áhuga á að koma
nálægt Íslandi hvað varðar fjárfestingar hér á
landi þegar menn haga sér með þessum hætti .
Það er verið að skapa hér rekstrarumhverfi
fyrir fyrirtæki sem gerir það að verkum að
umtalsverðar líkur eru á því að fyrirtækin
lognist út af eins og þetta dæmi sannar .
Í fyrstu brást Steingrímur J . Sigfússon fjár-
málaráðherra hart við þessari gagnrýni, jafnvel
þó iðnaðarráðherra væri lagður á flótta ásamt
nokkrum þingmönnum Samfylkingarinnar . Í
viðtali við Ríkisútvarpið 22 . nóvember sagði
fjármálaráðherra:
Það stendur ekki til að Ísland verði einhver
skattaparadís fyrir mengandi starfsemi sem er
orðin skattlögð alls staðar erlendis . Það er ekki
það sem við viljum, er það?
Steingrímur hélt því fram að aldrei hafi verið
samið um að almennar skattabreytingar komi
ekki við þessi fyrirtæki eins og önnur:
Og fyndist mönnum það sanngjarnt ef að inn-
lendu atvinnugreinarnar sem fyrir eru, öll
umferðin, sjávarútvegurinn, aðrir slíkir sem nota
mikið af jarðefnaeldsneyti, að þeir borgi kolefnis-
gjald en þessi iðnaður sé algjörlega laus við það?“
Sjö dögum eftir viðtalið í Ríkisútvarpinu átti
Stein grímur J . Sigfússon fund með Sam tök um
atvinnulífsins og fulltrúum helstu fyrir tækja
sem ætlað er að greiða kolefnisgjald samkvæmt
fyrrnefndu frumvarpi . Þar lýsti ráðherrann því
yfir að öll áform um kolefnisskatt á rafskaut
hefðu verið lögð til hliðar . Það sem sagt var
fyrir viku var gert merkingarlaust .
Þannig fara stjórnvöld fram í algjöru stefnu-
leysi og hrekjast síðan undan . Skiptir engu
hvort um er að ræða skipulag sjávar útvegs
eða skattlagningu á stóriðju . Og innlendir og
erlendir fjárfestar, sem og lands menn allir, hrista
hausinn, og velta því fyrir sér hvort eitt hvað sé
að marka það sem sagt er í þessari viku .
Við erum að verða undir
Afleiðingin af hringlandahætti og stjórn-leysi ríkisstjórnarinnar, undir verkstjórn
Jó hönnu Sigurðardóttur, er sú að Ísland er að
verða undir í samkeppni þjóðanna . Póli tísk
áhætta er orðin einn helsti drag bítur efna hags-
legr ar upp byggingar . Erlendir og inn lendir
fjárfestar óttast fátt meira en pólitíska áhættu .
Þegar ríkisstjórn stendur ekki við gerða samn-
inga og vinnur að stöðugum breytingum á
skatt kerfinu, á það ekki að koma neinum á
óvart að fjárfestar haldi að sér höndum og/eða
leiti tækifæra í öðrum löndum . Samkvæmt
úttekt áhættu mats fyrirtækisins AON er Ísland
talið í flokki landa eins og Egypta lands, Sádí
Arabíu, Sambíu og Rússlands, þegar kemur
að pólitískri áhættu .
Í úttekt IMD viðskiptaháskólans í Sviss frá
2010 er Ísland í 30 . sæti yfir samkeppnishæfni
þjóða en árið 2007 var Ísland í í sjöunda sæti .
Í skýrslu World Economic Forum (WEF),
hefur Ísland fallið um átta sæti árið 2010 frá
árinu 2007 þegar Ísland var í 23 . sæti .
105 milljarðar í súginn
Nýjasta þjóðhagsspá Seðlabankans bend -ir til að landsframleiðslan hér á landi