Þjóðmál - 01.12.2011, Blaðsíða 32
Þjóðmál VETUR 2011 31
Björn Bjarnason
Leit Evrópusambandsins
að nýju lögmæti
Athygli vakti á blaðamannafundi í Brussel miðvikudaginn 23 . nóvember
2011 hve talsmönnum framkvæmdas tjórn-
ar ESB var mikið í mun að minna menn
á sögu og reynslu Bandaríkjamanna þegar
þeir kynntu tillögur sínar um evru-skulda-
bréf og íhlutunarrétt framkvæmdastjórnar-
innar í fjárlagagerð einstakra evru-ríkja .
Við Íslendingar höfum reynslu af því að
sendir séu tilsjónarmenn inn í einstakar rík-
is stofnanir fari þær ekki að fjárlögum . Nú
vill framkvæmdastjórn ESB koma að gerð
fjárlaga í evru-ríkjum og einnig skipa til-
sjónarmenn til að fylgja fram kröfum sínum .
Forystumenn stóru ríkjanna innan evru-
svæðisins tala um að auka beri samruna og
yfirstjórn á svæðinu skref fyrir skref, hér er
liður í þeirri stefnu kynnt .
Skrefið er kjarni tillagna framkvæmda-
stjórnarinnar til að bjarga evru-samstarfinu
frá upplausn og koma í veg fyrir hrun
evr unnar . Þrátt fyrir björgunarsjóði og
neyðar lán hefur ekki tekist að leysa skulda-
vandann .
Ríkisstjórnir falla
Þegar Barroso kynnti tillögur sínar höfðu sex ríkisstjórnir fallið á evru-svæðinu: á
Írlandi, Spáni, Ítalíu, í Grikklandi, Slóvakíu
og Portúgal . Þá urðu stjórnarskipti í Dan-
mörku að loknum þingkosningum . Þær er
þó ekki unnt að rekja beint til evru-vandans
eins og kosningarnar á Írlandi, Spáni og í
Portúgal .
Á Ítalíu og í Grikklandi knúðu valda menn
ESB og einstakra evru-ríkja fram afsögn
rík isstjórna, í nafni evrunnar . Í Slóvak íu
baðst forsætisráðherrann lausnar fyrir sig og
ráðu neyti sitt til að knýja fram samþykki í
þingi á ábyrgð á björgunaraðgerðum í þágu
evrunnar . Til þessa hefur yfirþjóðlegt eða
yfirríkja vald verið skilgreint sem framsal á
valdi til yfirþjóðlegrar stofnunar . Innan evru-
svæðisins er til óumsamið og óskil greint
vald sem ræður lífi rétt kjörinna ríkisstjórna
í einstökum löndum fari skuldavandi þeirra
yfir ákveðin þolmörk eða „makki“ stjórnir
ekki rétt að mati stjórnenda klúbbsins .
Ríkjasamband — sambandsríki
Við kynningu á evru-skuldabréfunum ræddi José Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, um stofnun
Bandaríkja Norður-Ameríku og leyni-
samning frá árinu 1790 sem hann sagði að
hefði auðveldað mönnum að leggja grunn