Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 40
Þjóðmál VETUR 2011 39
Vandinn er hins vegar sá sami og gull-
gerða rmenn hafa þurft að glíma við frá upp-
hafi . Það er ekki hægt að prenta verðmæti .
Verðmæti verða til fyrir atbeina einstaklinga
og um leið og ríki fara að gera verðmætin
upptæk þá hrynur framleiðsla þeirra . Það er
því hvorki hægt að skuldsetja sig til hagsældar
né skattleggja sig til hagsældar, ekki frekar en
það er hægt að rífa sjálfan sig upp á hárinu .
Eina lausnin á vandanum eru afskriftir
skulda . Niðurfærsla skulda er óumflýjanleg
því lántakar geta ekki greitt af þeim og því
fyrr sem horfst verður í augu við þann
vanda, því betra . Eina leiðin til að fyrir-
byggja síðan að sagan endurtaki sig er að
takmarka heimildir ríkja til skuld s etn ing-
ar, bæði með lántökum og prentun pen-
inga .
Þýska þingið, Bundestag, samþykkti í síðustu viku [29 . september 2011]
að stækka samevrópskan sjóð til að bjarga
Grikklandi, eða öllu heldur lánardrottnum
Grikklands . Með því fjarlægist evrusvæðið
stofnskrá sína um að þátttökuríkin skuli
hafa sameiginlega mynt en bera sjálf ábyrgð
á fjármálum sínum .
* * *
Í hinu alþjóðlega umhverfi, með fljót-
andi gjaldmiðlum, virtist hugmyndin um
sameiginlega mynt róttæk og því urðu
margir til að spá því að tilraunin um evruna
myndi mistakast . En í sögulegu ljósi hafa
fljótandi gjaldmiðlar, pappírsgjaldmiðlar án
trygginga, verið undantekningin . Núverandi
fyrirkomulag peningamála kom til sögunnar
fyrir 40 árum síðan þegar Richard Nixon,
forseti Bandaríkjanna, tók dollarann af
gullfætinum . Það leiddi til hruns Bretton
Woods-kerfisins þar sem skipti á 35 dollurum
yfir í únsu af gullu var akkerið .
Endalok Bretton Woods þýddi að gengi
gjald miðla varð fljótandi og við tóku
áratugir verðbólgu . Í fyrsta sinn í sögunni
not aðist heimshagkerfið við pappírspen-
inga sem stóðu ekki á gullfæti eða öðrum
góðmálmum, eða voru festir hver við
annan .
Vissulega höfðu lönd farið af gullfætin-
um áður, stundum oft en yfirleitt vegna
stríðsreksturs, sem tæmdi gullforða þeirra .
En það var alltaf tímabundið ástand . Það
sem gerðist eftir 1971 var á allt annan
veg og það er erfitt að halda því fram að
árangurinn hafi verið góður . Síðustu 40
ár hafa einkennst af verðbólgu, gríðarlegri
útþenslu ríkisútgjalda og skulda í hinum
vestræna heimi .
Í þessu samhengi var evran stökk inn
___________________________________________
Lausn evru-krísunnar felst ekki í
sjálfstæðum myntum
Ritstjórnargrein úr The Wall Street Journal